flugfréttir

Tveir flugmenn neita viðtölum hjá NTSB þar sem þau eru hljóðrituð

- NTSB stefnir tveimur flugmönnum hjá American Airlines

12. febrúar 2023

|

Frétt skrifuð kl. 18:25

Atvikið átti sér stað á John F. Kennedy flugvellinum í New York þann 13. janúar sl.

Samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB) hefur stefnt tveimur flugmönnum hjá American Airlines þar sem þeir hafa neitað að veita viðtöl vegna alvarlegs brautarátroðnings sem átti sér stað á John F. Kennedy flugvellinum í New York í síðasta mánuði.

Atvikið átti sér stað þann 13. janúar sl. er Boeing 777 þota frá American Airlines þveraði flugbraut í notkun en á sama tíma var Boeing 737 þota frá Delta Air Lines að hefja flugtaksbrun á brautinni.

Þann 10. febrúar birti NTSB bráðabirgðarskýrslu varðandi atvikið og var búið að taka viðtöl við þá flugumferðarstjóra sem voru á vakt og voru þau viðtöl hljóðrituð til þess að tryggja hámarks nákvæmni, skilvirkni og til þess að tryggja vitnisburð.

NTSB segir í skýrslu sinni að allar tilraunir til þess að ná tali við flugmennina og ræða við þá hafi farið út um þúfur þar sem þeir neita viðtölum á þeim forsendum að þeir vilja ekki að viðtölin verða hljóðrituð.

„Vegna þessa, þar sem flugmennirnir sýna ítrekað viljaleysi fyrir viðtölum til að aðstoða okkur við rannsókn atviksins, þá hefur nefndin ákveðið að stefna þeim til þess að fá vitnisburð frá þeim“, segir í yfirlýsingu frá NTSB en fram kemur að búið sé að gera þrjár tilraunir til þess að boða þá í viðtöl.

Þá segir NTSB að búið sé að fá upplýsingar úr flugrita og hljóðrita þotunnar en fljótlega kom í ljós að búið var að taka yfir þann hluta upptökunnar úr hljóðritanum sem rannsóknaraðilar voru að vonast til þess að fá.

American Airlines segir í yfirlýsingu að flugfélagið sé í góðu samstarfi við NTSB vegna rannsóknarinnar en verkalýðsfélag flugmnannana, Allied Pilots Assiciation (APA), hefur lýst því yfir að flugmennirnir ætli sér ekki að tjá sig við rannsóknaraðila ef viðtölin verða hljóðrituð.

„Eftir að hljóðritun á viðtölvum við rannsóknar á atvikum var kynnt til sögunnar þá eru meiri líkur á því að það eigi eftir að hindra rannsóknarferli í stað þess að auðvelda ferlið“, segir í yfirlýsingu frá APA, sem bendir á að hljóðrituð viðtöl eiga ekki bara eftir að draga úr hreinskilni heldur verða til þess að viðkomandi aðilar kæra sig ekki um viðtöl og neita að fara í þau.

Í bráðabirgðarskýrslunni kemur fram að talið sé að flugmenn Boeing 777 þotu American Airlines hafi misskilið fyrirmæli frá flugumferðarstjórum um akstursleiðbeiningar og þverað braut 4L á meðan að fyrirmælin fóru fram á að þvera braut 31.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga