flugfréttir
Laun flugmanna hjá Hawaiian munu hækka um 32 prósent
Samningurinn tekur í gildi 2. mars og munu laun flugmanna hækka strax um 16.6 prósent
Flugmenn hjá Hawaiian Airlines hafa samþykkt nýjan kjarasamning sem felur í sér 32 prósenta launahækkun yfir fjögurra ára tímabil.
Starfsmannafélagið Air Lines Pilots Association (ALPA) lýsti því yfir þann 10. febrúar
að nýi kjarasamningurinn bjóði upp á samkeppnishæf laun bæði fyrir flugmenn
sem fljúga áætlunarflug á vegum félagsins auk þeirra sem fljúga fraktflug
með nýju Airbus A330F fraktþotunum sem félagið á von á að fá síðar á þessu ári.
Flugmenn félagsins kusu um nýja samninginn á dögunum og voru 65% sem
kusu með honum af þeim 93 prósent flugmanna sem tóku afstöðu.
Samningurinn tekur í gildi 2. mars og munu laun flugmanna hækka strax um 16.6 prósent
að meðaltali auk þess sem hann felur í sér fríðindi á borð við bónusgreiðslur, ný réttindi
er varðar læknisþjónustu og meiri sveigjanleika er kemur að vöktum.
Síðastliðnar vikur hafa nokkur flugfélög á borð við JetBlue, Spirit Airlines og Delta Air Lines, samþykkt nýja kjarasamninga sem bjóða upp á launahækkanir auk þess sem laun meðal flugmanna, sem fljúga fyrir minni svæðisflugfélög (regional airlines), hafa einnig hækkað töluvert að undanförnu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.