flugfréttir
Valletta Airlines sækir um leyfi fyrir flugi til Bandaríkjanna
Airbus A320 þota frá Valletta Airlines
Maltneska flugfélagið Valletta Airlines hefur sótt um leyfi til þess að hefja flug til Bandaríkjanna.
Flugfélagið sækir um sérstaka heimild hjá samgönguráðuneyti Bandaríkjanna auk undanþágu en flugfélagið gefur ekki upp hverjar áætlanir félagsins eru með umsókninni.
Fram kemur að flugfélagið fer fram á flýtimeðferð svo hægt sé að hefja flug til Bandaríkjanna eins fljótt og kostur er.
Valletta Airlines hefur í dag eina Airbus A320 þotu í flotanum og stefnir félagið á að bæta við tveimur til viðbótar en flugfélagið fékk flugrekstarleyfi í hendurnar þann 9. febrúar síðastliðinn.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.