flugfréttir

Boeing gerir hlé á afhendingum á Dreamliner-þotum

- Annmarkar fundust við framleiðslu á skrokk flugvélanna hjá birgjum

24. febrúar 2023

|

Frétt skrifuð kl. 16:05

Dreamliner-þotur í samsetningarsal Boeing

Boeing hefur ákveðið að fresta afhendingum aftur á nýjum Dreamliner-þotum.

Þetta tilkynnti flugvélaframleiðandinn og bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) í dag en ástæðan er sögð vera vegna skoðunar á einingum sem framleiddar eru fyrir skrokkinn á þotunum og gangast þær undir gæðaskoðun á næstu dögum.

Fram kemur að Boeing þurfi að sýna flugmálayfirvöldum fram á að búið sé að lagfæra atriði áður en afhendingar hefjast að nýju.

„Það er engin ógn sem steðjar að og þarf ekki að hafa áhyggjur af þessu hvað varðar flugöryggi fyrir þær Dreamliner-þotur sem eru í umferð“, segir í tilkynningu frá Boeing í dag.

„Við eigum í samskiptum við viðskiptavini okkar og munum halda áfram að fara eftir fyrirmælum frá FAA og þá mun þetta ekki hafa áhrif á fjölda afhendinga á þessu ári“.

Fram kemur hjá Boeing að annmarkar fundust við greiningu hjá birgjum sem framleiða skrokkinn á Dreamliner-þotunum og er um að ræða þrýstingsvegg („aft pressure bulkhead“) sem vandamálið snýr að.

Þá segir að hlé verður gert á framleiðslu á Boeing 787 þotunum á meðan verið er að leysa vandamálið.













  fréttir af handahófi

Ætla að bæta við 80 nýjum flugvélum á þessu ári

4. janúar 2023

|

Lion Air Group ætlar sér að bæta við allt að 80 nýjum farþegaþotum við flugflota dótturfélaga sinna á þessu ári.

Sogaðist inn í hreyfil á þotu á gamlársdag

2. janúar 2023

|

Flugvallarstarfsmaður lét lífið á gamlársdag er hann sogaðist inn í hreyfil á farþegaþotu frá American Airlines af gerðinni Embraer ERJ-175LR á flugvellinum í Montgomery í Alabama í Bandaríkjunum.

Bluebird Nordic stefnir á flugrekstarleyfi í Slóvakíu

21. mars 2023

|

Íslenska fraktflugfélagið Bluebird Nordic ætlar að sækja um flugrekstarleyfi í Slóvakíu og auka með því umsvif sín á meginlandi Evrópu.

  Nýjustu flugfréttirnar

Starfsemi Asia Pacific stöðvað vegna annmarka í þjálfun flugmanna

21. mars 2023

|

David Kabua, forseti Marshall-eyjanna í Kyrrahafi hefur lýst yfir neyðarástandi á eyjunum vegna skorts á nauðsynlegum vörum eftir að flugfloti flugfélagsins Asia Pacific Airlines var kyrrsettur í fe

Bluebird Nordic stefnir á flugrekstarleyfi í Slóvakíu

21. mars 2023

|

Íslenska fraktflugfélagið Bluebird Nordic ætlar að sækja um flugrekstarleyfi í Slóvakíu og auka með því umsvif sín á meginlandi Evrópu.

Flugmaður hjá BA lést á hóteli rétt fyrir brottför til London Heathrow

21. mars 2023

|

Flugmaður hjá British Airways fékk hjartaáfall og lést skömmu áður en hann átti að mæta ásamt áhöfninni út á flugvöll í Egyptalandi til að fljúga Airbus A321 þotu félagsins til London Heathrow.

Flair höfðar mál gegn flugvélaleigu

20. mars 2023

|

Kanadíska flugfélagið Flair Airlines hefur höfðað mál gegn flugvélaleigunni Airborne Capital eftir að flugvélaleigan lét gera upptækar fjórar Boeing 737 MAX farþegaþotur í flota félagsins vegna vangol

City Airlines nýtt dótturfélag Lufthansa

20. mars 2023

|

Lufthansa vinnur nú hörðum höndum að því að ýta úr vör nýju dótturflugfélagi sem nefnist City Airlines.

AirBaltic tekur á leigu fjórar Airbus A320 þotur

20. mars 2023

|

Lattneska flugfélagið airBaltic mun taka tímabundið í notkun þotur af gerðinni Airbus A320.

Bannað að þjónusta rússneskar Boeing-þotur í Tyrklandi

17. mars 2023

|

Ríkisstjórn Tyrklands hefur ákveðið að banna flugvöllum í landinu að þjónusta Boeing-þotur í flota rússneskra flugfélaga og fá þær því ekki að taka eldsneyti eða tilheyrandi þjónustu.

FAA fer fram á 25 tíma upptöku úr hljóðritum

17. mars 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa ákveðið að innleiða reglugerð sem fer fram á að hljóðriti um borð í flugvélum varðveiti upptökur í 25 klukkustundir áður en ritað er yfir þær aftur.

Atlas Air varar við skorti á framboði í fraktfluginu

15. mars 2023

|

Bandaríska fraktflugfélagið Atlas Air telur að alvarlegur skortur á stórum fraktflugvélum blasi við í heiminum á næstu árum.

Útafbrautaratvik algengasta tegund slysa meðal einkaþotna

15. mars 2023

|

Atvik þar sem flugvél fór út af flugbraut var algengasta tegund atvika og slysa meðal einkaþotna árið 2022 og það annað árið í röð.

';

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá