flugfréttir
Air India ætlar að ráða 4.200 flugfreyjur og 900 flugmenn

Air India tilkynnti fyrr í þessum mánuði um risapöntun í 470 nýjar þotur frá Boeing og Airbus
Stuttu eftir að indverska flugfélagið Air India tilkynnti um risastóra pöntun í næstum því 500 flugvélar þá leitar félagið núna að hátt í 5.000 áhafnarmeðlimum auk flugmanna.
Air India ætlar sér að ráða um 4.200 flugfreyjur og flugþjóna og um 900 flugmenn á þessu ári
en flugfélagið hefur nú þegar ráðið 1.900 flugfreyjur og 285 flugmenn síðan í apríl í fyrra og hafa yfir 1.000 flugfreyjur hafið þjálfun sem stendur yfir í 15 vikur.
„Með þeirri pöntun sem tilkynnt var um fyrr í þessum mánuði og með fleiri flugferðum í
millilandaflugi og í innanlandsflugi, þá munu áhafnir skapa viðamikið hlutverk í að skapa
framtíð Air India“, segir Sandeep Verma, yfirmaður yfir þjónustudeild flugfélagsins.
Air India gerir ráðið fyrir að innleiða um 470 nýjar Boeing og Airbus þotur næsta áratuginn
en flugfélagið tilkynnti um pantanir í nýjar þotur á Aero India 2023 flugsýningunni sem
fram fór frá 13. til 17. febrúar sl. í borginni Bengaluru.
Pöntunin samanstendur af 250 þotum frá Airbus og 220 þotum frá Boeing en er kemur
að þotunum frá Airbus þá á félagið von á fjörutíu breiðþotum af gerðinni A350 og 210
þotum úr A320 fjölskyldunni.



21. mars 2023
|
David Kabua, forseti Marshall-eyjanna í Kyrrahafi hefur lýst yfir neyðarástandi á eyjunum vegna skorts á nauðsynlegum vörum eftir að flugfloti flugfélagsins Asia Pacific Airlines var kyrrsettur í fe

1. febrúar 2023
|
Flugfreyja hjá British Airways var handtekin á dögunum á Gatwick-flugvellinum í London eftir að grunur lék á að hún væri undir áhrifum áfengis og mögulega annarra fíkniefna er hún var við störf um bo

2. janúar 2023
|
Flugvallarstarfsmaður lét lífið á gamlársdag er hann sogaðist inn í hreyfil á farþegaþotu frá American Airlines af gerðinni Embraer ERJ-175LR á flugvellinum í Montgomery í Alabama í Bandaríkjunum.

21. mars 2023
|
David Kabua, forseti Marshall-eyjanna í Kyrrahafi hefur lýst yfir neyðarástandi á eyjunum vegna skorts á nauðsynlegum vörum eftir að flugfloti flugfélagsins Asia Pacific Airlines var kyrrsettur í fe

21. mars 2023
|
Íslenska fraktflugfélagið Bluebird Nordic ætlar að sækja um flugrekstarleyfi í Slóvakíu og auka með því umsvif sín á meginlandi Evrópu.

21. mars 2023
|
Flugmaður hjá British Airways fékk hjartaáfall og lést skömmu áður en hann átti að mæta ásamt áhöfninni út á flugvöll í Egyptalandi til að fljúga Airbus A321 þotu félagsins til London Heathrow.

20. mars 2023
|
Kanadíska flugfélagið Flair Airlines hefur höfðað mál gegn flugvélaleigunni Airborne Capital eftir að flugvélaleigan lét gera upptækar fjórar Boeing 737 MAX farþegaþotur í flota félagsins vegna vangol

20. mars 2023
|
Lufthansa vinnur nú hörðum höndum að því að ýta úr vör nýju dótturflugfélagi sem nefnist City Airlines.

20. mars 2023
|
Lattneska flugfélagið airBaltic mun taka tímabundið í notkun þotur af gerðinni Airbus A320.

17. mars 2023
|
Ríkisstjórn Tyrklands hefur ákveðið að banna flugvöllum í landinu að þjónusta Boeing-þotur í flota rússneskra flugfélaga og fá þær því ekki að taka eldsneyti eða tilheyrandi þjónustu.

17. mars 2023
|
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa ákveðið að innleiða reglugerð sem fer fram á að hljóðriti um borð í flugvélum varðveiti upptökur í 25 klukkustundir áður en ritað er yfir þær aftur.