flugfréttir

Air India ætlar að ráða 4.200 flugfreyjur og 900 flugmenn

27. febrúar 2023

|

Frétt skrifuð kl. 08:26

Air India tilkynnti fyrr í þessum mánuði um risapöntun í 470 nýjar þotur frá Boeing og Airbus

Stuttu eftir að indverska flugfélagið Air India tilkynnti um risastóra pöntun í næstum því 500 flugvélar þá leitar félagið núna að hátt í 5.000 áhafnarmeðlimum auk flugmanna.

Air India ætlar sér að ráða um 4.200 flugfreyjur og flugþjóna og um 900 flugmenn á þessu ári en flugfélagið hefur nú þegar ráðið 1.900 flugfreyjur og 285 flugmenn síðan í apríl í fyrra og hafa yfir 1.000 flugfreyjur hafið þjálfun sem stendur yfir í 15 vikur.

„Með þeirri pöntun sem tilkynnt var um fyrr í þessum mánuði og með fleiri flugferðum í millilandaflugi og í innanlandsflugi, þá munu áhafnir skapa viðamikið hlutverk í að skapa framtíð Air India“, segir Sandeep Verma, yfirmaður yfir þjónustudeild flugfélagsins.

Air India gerir ráðið fyrir að innleiða um 470 nýjar Boeing og Airbus þotur næsta áratuginn en flugfélagið tilkynnti um pantanir í nýjar þotur á Aero India 2023 flugsýningunni sem fram fór frá 13. til 17. febrúar sl. í borginni Bengaluru.

Pöntunin samanstendur af 250 þotum frá Airbus og 220 þotum frá Boeing en er kemur að þotunum frá Airbus þá á félagið von á fjörutíu breiðþotum af gerðinni A350 og 210 þotum úr A320 fjölskyldunni.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga