flugfréttir

Flugmenn Delta samþykkja 34 prósenta launahækkun

1. mars 2023

|

Frétt skrifuð kl. 19:58

Flugmenn Delta Air Lines munu hækka strax í launum um 18 prósent

Flugmenn Delta Air Lines hafa samþykkt með miklum meirihluta nýjan kjarasamning sem felur í sér launahækkun upp á allt að 34 prósent.

Flugmannafélagið ALPA (Air Line Pilot Association), sem fer fyrir 15.000 flugmönnum hjá félaginu, tilkynnti að 78% flugmanna tóku þátt í kjörinu og voru 96% flugmanna sem kusu með samningnum.

Samningurinn nær til næstu fjögurra ára en þess má geta að önnur bandarísk flugfélög á borð við American Airlines, Southwest Airlines og United Airlines eiga nú öll í samningaviðræðum um bættari kjör.

Kjarasamningur Delta Air Lines hljóðar að meðaltali upp á 23% launahækkun en hækkun launa fer eftir hversu lengi hver flugmaður hefur starfað hjá flugfélaginu.

Kjarasamningurinn er metinn á 1.025 milljarða króna og nær hann fram til næstu fjögurra ára en flugmenn munu hækka strax í launum um 18 prósent og önnur 5 prósenta hækkun tekur við að ári liðnu.

Því næst munu flugmenn hækka í launum um 4 prósent á næstu tvö árin og þá munu þeir einnig fá eina eingreiðslu sem samsvarar 4 prósent af þeim launum sem þeir höfðu árið 2020 og aftur fyrir þau laun sem þeir voru með árið 2021 og 14 prósent af launum sínum í fyrra.

Önnur kjör sem munu fylgja kjarasamningnum er 10 vikna fæðingarorlof á launum, betri máltíð um borð og betri heilbrigðistryggingu.

Laun aðstoðarflugmanns hjá Delta Air Lines eru á bilinu 13.000 til 34.000 krónur á klukkustund á meðan laun flugstjóra eru á bilinu 33.000 til 47.000 krónur á tímann.

Með launahækkuninni munu háttsettustu flugstjórar Delta Air Lines því fá laun upp á 62.000 krónur á tímann og má því áætla að mánaðarlaun þeirra verði í kringum 5.2 milljónir á mánuði.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga