flugfréttir
Leggja til sérstaka áritun fyrir fallhlífarstökksflugmenn
- Birta skýrslu vegna flugslyss sem átti sér stað í Orebro árið 2021
Flak flugvélarinnar sem fórst skammt frá flugvellinum í Orebro í Svíþjóð þann 8. júlí árið 2021
Taka ætti í gagnið sérstaka áritun í flugskírteini og viðeigandi þjálfun fyrir þá flugmenn sem fljúga með fallhlífastökkvara.
Þetta er mat sérfræðinga í flugslysarannsóknum í Svíþjóð og kemur þetta álit
fram í niðurstöðum skýrslu varðandi flugslyss sem átti sér stað í júlí árið 2021
er flugvél af gerðinni De Havilland Canada DHC-2 brotlenti skömmu eftir flugtak frá
flugvellinum í Orebro.
Um borð var flugmaður og átta fallhlífastökkvarar og var engin sem lifði slysið af
en rannsóknarnefnd flugslysa í Svíþjóð telur að massamiðja flugvélarinnar hafi verið
fyrir utan þau mörk sem gefin eru upp í handbók vélarinnar.
Þrátt fyrir það kemur fram í skýrslunni að margir aðrir flugmenn, sem hafa flogið sömu
flugvélartegund, hafi verið á þeirri skoðun að „engin hætta“ hafi verið á ferð þar sem
ómögulegt er að massamiðjan geti farið aftur fyrir aftari mörk vélarinnar.
Rannsóknardeild flugslysa í Svíþjóð segir að ekki hafi verið notast við neina aðferð
til þess að reikna út hleðslu og þyngd fyrir viðkomandi flug en finna má leiðbeiningar
frá árinu 1989 þar sem fram kemur að ef massamiðjan er of nálægt fremri mörkum
mætti hliðra til eldsneyti í aftari eldsneytistanka vélarinnar til þess að komast hjá því að
flugvélin verði of framþung.
Hinsvegar komust rannsóknaraðilar að því að viðkomandi flugvél hafi á sínum tíma gengist
undir viðgerð og breytingar auk þess sem skipt var um mótor í flugvélinni og við það hafi
massamiðja miðað við tóma flugvél færst aftar og ekki var lengur þörf á að hafa eldsneyti
í aftari tanknum - en hinsvegar þá var ekki gert ráð fyrir þeim þáttum.
Í skýrslunni telur nefndin að flugvélin hafi „í flestum tilvikum“ verið rétt hlaðin ef fallhlíðastökkvari
var staðsettur við hlið flugmannsins en vegna varúðaráðstafanna og sóttvarna, sem gerðar voru
í heimsfaraldrinum til að halda fjarlægð á milli flugmanns og fallhlífarstökkvara, var sætið
við hliðina á flugmanninum sett aftur á sinn stað og gert ráð fyrir að það yrði tómt.
Þetta skapaði undirliggjandi hættu þar sem fallhlífarstökkvarar voru samankomnir aftar
í flugvélinni sem færði massamiðjuna nær aftari mörkunum sem eykur hættuna á ofrisi
í flugtaki.
Fram kemur að hleðsluskjalið sem flugmaðurinn fékk frá fallhlífastökkvaraklúbbnum hafi
sýnt þyngd hversu og eins fallhlífarstökkvara en ekki hvar þeir ættu að sitja um borð í vélinni
til að viðhalda æskilegri þyngdardreifingu og vissi flugmaðurinn því ekki hvernig þyngdin
dreifðist um borð í flugvélinni.
Þá kom fram við rannsókn slyssins að hæðarstýrisstillir (elevator trim) hafi ekki verið
í hlutlaustri stöðu í flugtakinu og er talið að flugmaðurinn hafi farið yfir nauðsynleg
atriði fyrir flugtak í huganum eftir minni í stað þess að notast við tékklista.
Með ranga hæðarstýrisstillingu hafi nef flugvélarinnar vísað of mikið upp á við í flugtaki
þar sem hún var of afturþung og er talið að flugmaðurinn hafi átt í erfiðleikum með
að ná tökum á að ýta nefinu niður á við og hafi flugvélin orðið mjög óstöðug í klifrinu
og að lokum hafi flugmaðurinn misst stjórn skömmu eftir að hann tók upp flapana.
Flugvélin náði um 400 til 500 feta hæð áður en hún féll á vinstri vænginn, annaðhvort sökum
þess að hún fór í ofris eða vegna þess að flugmaðurinn hafi tekið beygju sjálfur. Flugvélin
tók 180 gráðu beygju áður en hún skall til jarðar.
Í skýrslunni segir að ekki sé farið fram á neina sérstaka áritun fyrir flugmann sem flýgur
með fallhlífarstökkvara þrátt fyrir umfang og hversu flókið það ferli er þegar kemur að
starfsemi og flugmennsku.
„Það er ástæða til þess að spyrja spurninga hvort ástæða sé til þess að hver og einn flugmaður,
sem flýgur með fallhlífarstökkvara, sé með nægileg gögn til þess að meta þær áhættur sem
eru fyrir hendi og hvort þeir eigi að gangast undir sérstaka þjálfun og fá sérstaka áritun í
skírteinið“, segir í skýrslunni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.