flugfréttir
Flugmaður stökk út úr flugvél sinni í fallhlíf eftir mótormissi
- Listflugvél fór mannlaus til jarðar á akri í Kaliforníu

Atvikið átti sér stað í gær klukkan 15:45 að vesturstrandartíma
Flugmaður stökk út úr flugvél sinni í fallhlíf í Kaliforníu í Bandaríkjunum í gær eftir að bilun kom upp í mótornum.
Flugvélin, sem er af gerðinni Cassutt Special IIM, sveif mannlaus um stund þar til hún fór í spíral og féll til jarðar og brotlenti á akri nálægt bænum Castroville, skammt suður af San Francisco, en akurinn var á floti vegna vatnavaxta.
Cassutt Special er eins sæta, heimasmíðuð listflugvél, hönnuð af fyrrverandi flugstjóranum Tom Cassutt sem
starfaði hjá Trans World Airlines (TWA) og kom hún fyrst á markað árið 1954.
Flugvélin var á flugi nálægt bænum Castroville þegar upp komu gangtruflanir í mótornum og er haft
eftir flugmanninum að hann hafi átt í miklum erfiðleikum með að hafa stjórn á flugvélinni.
Flugmaðurinn áttaði sig fljótlega á því að möguleikinn á að lenda vélinni með öruggum hætti væri hverfandi
og ákvað hann að grípa fallhlífina og stökkva um leið og hann var komin yfir opið svæði.

Flugvélin var heimasmíðuð listflugvél af gerðinni Cassutt Special IIM
Þetta tókst flugmanninum og horfði hann á flugvélina fara í spíral áður en hún stakkst með nefið niður og brotlenti
á akri nálægt hraðbrautinni Highway 156.
Sjónarvottar hringdu í neyðarlínuna og báðu eftir aðstoð og mætti lögregla og sjúkrabílar á staðinni og fannst
flugmaðurinn á akri hinumegin við hraðbrautina og hafði hann laskast á fæti en var annars heill á húfi.
Flugmaðurinn var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar en flugvélin er gjörónýt. Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA)
og samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB) hafa hafið rannsókn á atvikinu.


6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.