flugfréttir
Atlas Air varar við skorti á framboði í fraktfluginu
- Mkill fjöldi af stórum fraktþotum sem fara úr umferð á næstu árum
Steen segir að það sem flugiðnaðurinn þarf sé ný tegund af fraktþotu sem þarf að koma á markaðinn
Bandaríska fraktflugfélagið Atlas Air telur að alvarlegur skortur á stórum fraktflugvélum blasi við í heiminum á næstu árum.
Michael Steen, framkvæmdarstjóri Atlas Air, segir að um 120 fraktbreiðþotur verða teknar úr
umferð á næstu árum vegna aldurs og þá nefnir hann að breytingar á farþegaþotum í fraktþotur
gangi ekki eins hratt fyrir sig til að anna eftirspurninni.
Steen hélt ávarp á ráðstefnunni International Society of Transport Aircraft Trading (ISTAT) sem fram fór í San Diego á dögunum þar sem hann nefndi
að fraktflugfélög ætla sér að taka úr umferð óvenju mikið magn af stórum fraktþotum á næstu fimm
til tíu árum og tekur hann fram að fjöldi þeirra farþegaþotna sem breytt verður í fraktþotur nær
ekki að brúa bilið.
Steen leggur meðal annars til að ný tegund af fraktþotu komi á markaðinn
og varar hann við því að iðnaðurinn gæti staðið frammi fyrir sambærilegum skorti á fraktflugi og
varð í heimsfaraldrinum þegar flugfélögin skorti rými til þess að flytja frakt vegna mikillar eftirspurnar.
Fimmtíu prósent af flugfrakt er flutt með farþegaflugi
Tillaga Steen er að flugiðnaðurinn auki hlutfall á þeirri frakt sem flutt er á milli
staða í sérhæfðu fraktflugi en í dag er um 50% af allri flugfrakt ferjuð í farangursrými á farþegaflugvélum.
Steen segir að gallinn við að flytja frakt í farþegaflugvélum sé sá að farþegaflug er oftat ekki á leið
til þeirra staða sem flugfrakt er send til flokkunnar sem hægir á dreifingu á frakt til áfangastaða.
Eins og staðan er í heiminum í dag eru þrjú verkefni í gangi þar sem verið er að breyta farþegaþotum
yfir í fraktþotur en meðal þeirra eru breytingar á Boeing 767-300ER, Boeing 777-200LR/-300ER og
fraktbreyting á Airbus A330-200/300 þotunum. Á sama tíma hefur framleiðslu á júmbó-fraktþotunni verið hætt
og var síðasta Boeing 747-8F þotan afhent á dögunum til Atlas Air.
Þá eru verið að smíða tvær nýjar stórar fraktþotur sem eru Boeing 777-8F og Airbus A350F en þær
koma hinsvegar ekki á markað fyrr en árið 2027 og 2025 en framleiðslu á Boeing 777F og Boeing 767F
verður hætt þar sem þær ná ekki lengur að uppfylla ný skilyrði Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO)
um kolefnaútblástur sem tekur í gildi árið 2027.
Steen segir að með þessar forsendur þá sé von á skorti á plássi fyrir flugfrakt og nefnir hann
að 8% samdráttur hafi orðið á framboði á fraktrými í fyrra samanborið við árið 2021.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.