flugfréttir
Bannað að þjónusta rússneskar Boeing-þotur í Tyrklandi
- Rússnesk flugfélög nota eingöngu Airbus-þotur í flugi til Tyrklands

Boeing 737-800 þota frá Aeroflot á flugvellinum í Istanbúl í Tyrklandi
Ríkisstjórn Tyrklands hefur ákveðið að banna flugvöllum í landinu að þjónusta Boeing-þotur í flota rússneskra flugfélaga og fá þær því ekki að taka eldsneyti eða tilheyrandi þjónustu.
Samt sem áður fá rússneskar flugvélar að fljúga í gegnum tyrkneska lofthelgi
og að fljúga til Tyrklands.
Þetta hefur orðið til þess að sum rússnesk flugfélög eru farin að nota Airbus-þotur
í áætlunarflugi til Tyrklands þar sem að bannið nær eingöngu til Boeing-þotna.
Bannið nær ekki aðeins til flugvéla í farþegaflugi heldur einnig til rússneska Boeing-flugvéla
sem eru í fraktflugi og í leiguflugi.
Rússneska flugfélagið Aeroflot hefur til að mynda notað eingöngu Airbus A320
og Airbus A321 þotur í flugi sínu frá Moskvu til Istanbúl en félagið hafði áður notað
Boeing 737-800 þotur til flugsins.



26. janúar 2023
|
Áætlunarflug er að hefjast að nýju um London Southend flugvöllinn á Englandi en easyJet hefur tilkynnt að félagið ætli að hefja beint flug frá Southend til Amsterdam þann 24. maí í vor.

2. mars 2023
|
Iraqi Airways hefur fengið afhenta sína fyrstu Boeing 737 MAX þotu af þeim fimmtán sem flugfélagið á von á að fá.

2. janúar 2023
|
Rússneska flugfélagið Aeroflot hefur fest kaup á tíu Boeing 777 þotum en þoturnar voru á leigu og hefur flugfélagið því keypt þær af flugvélaleigufyrirtækinu sem hafði áður reynt að fá þær til baka.

21. mars 2023
|
David Kabua, forseti Marshall-eyjanna í Kyrrahafi hefur lýst yfir neyðarástandi á eyjunum vegna skorts á nauðsynlegum vörum eftir að flugfloti flugfélagsins Asia Pacific Airlines var kyrrsettur í fe

21. mars 2023
|
Íslenska fraktflugfélagið Bluebird Nordic ætlar að sækja um flugrekstarleyfi í Slóvakíu og auka með því umsvif sín á meginlandi Evrópu.

21. mars 2023
|
Flugmaður hjá British Airways fékk hjartaáfall og lést skömmu áður en hann átti að mæta ásamt áhöfninni út á flugvöll í Egyptalandi til að fljúga Airbus A321 þotu félagsins til London Heathrow.

20. mars 2023
|
Kanadíska flugfélagið Flair Airlines hefur höfðað mál gegn flugvélaleigunni Airborne Capital eftir að flugvélaleigan lét gera upptækar fjórar Boeing 737 MAX farþegaþotur í flota félagsins vegna vangol

20. mars 2023
|
Lufthansa vinnur nú hörðum höndum að því að ýta úr vör nýju dótturflugfélagi sem nefnist City Airlines.

20. mars 2023
|
Lattneska flugfélagið airBaltic mun taka tímabundið í notkun þotur af gerðinni Airbus A320.

17. mars 2023
|
Ríkisstjórn Tyrklands hefur ákveðið að banna flugvöllum í landinu að þjónusta Boeing-þotur í flota rússneskra flugfélaga og fá þær því ekki að taka eldsneyti eða tilheyrandi þjónustu.

17. mars 2023
|
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa ákveðið að innleiða reglugerð sem fer fram á að hljóðriti um borð í flugvélum varðveiti upptökur í 25 klukkustundir áður en ritað er yfir þær aftur.