flugfréttir
AirBaltic tekur á leigu fjórar Airbus A320 þotur
Airbus A220-300 þota frá airBaltic á flugvellinum í Frankfurt
Lattneska flugfélagið airBaltic mun taka tímabundið í notkun þotur af gerðinni Airbus A320.
Um er að ræða fjórar Airbus A320 þotur sem teknar verða á leigu frá flugvélaleigunni Avion Express en tvær þeirra verða
notaðar í flugi frá Riga frá 26. mars til 28. október á meðan hinar tvær verða staðsettar í Tallinn í Eistlandi frá 1. maí
til 28. október.
AirBaltic hefur seinustu misseri unnið að því að hafa eingöngu Airbus A220 þotur í flotanum og er félagið nýbúið
að ná því markmiði með því að losa sig við eldri þotur af gerðinni Boeing 737 auk þess sem félagið er nýhætt með
skrúfurþoturnar Bombardier Dash 8 Q400.
Martin Gauss, framkvæmdarstjóri airBaltic, segir að eftirspurn eftir farþegaflugi sé að aukast mikið á sama tíma og framboð
eftir flugvélum og flugvélaíhlutum er ennþá í lágmarki eftir heimsfaraldurinn.
Því hafi verið ákveðið að grípa til þeirra aðgerða að tryggja sér flugvélakost yfir sumartímann til þess að anna eftirspurninni
og koma í veg fyrir að ekki þurfi að aflýsa flugi yfir háannatímann.
Flugfloti airBaltic samanstendur í dag af 40 þotum af gerðinni Airbus A220-300 en ellefu af þeim hafa verið leigðar í blautleigu (wet
lease) til svissneska flugfélagsins SWISS International Air Lines.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.