flugfréttir
Flugmaður hjá BA lést á hóteli rétt fyrir brottför til London Heathrow

Airbus A321 þota frá British Airways
Flugmaður hjá British Airways fékk hjartaáfall og lést skömmu áður en hann átti að mæta ásamt áhöfninni út á flugvöll í Egyptalandi til að fljúga Airbus A321 þotu félagsins til London Heathrow.
Atvikið átti sér stað á hóteli í Kaíró og er tekið fram að flugmaðurinn hafi fengið verki fyrir brjóstið
á hótelherbergi sínu og var komin fram í anddyri hótelsins til þess að kalla eftir aðstoð
þegar hann hneig niður.
Samstarfsfélagar hans í áhöfninni framkvæmdu skyndiaðstoð en án árangurs. British Airways
sendi Dreamliner-þotu til Kaíró, sérstaklega til þess að sækja flugmanninn þar sem
Airbus A321 þotan var ekki með aðstöðu til þess að bera líkkistu.
„Hugur okkar er hjá samstarfsfélögum flugmannsins, vinum og fjölskyldu á þessum
sorgartímum“, segir í yfirlýsingu frá British Airways.


17. maí 2023
|
Ríkisstjórn Slóveníu segir að ákveðið verði í næsta mánuði hvort að til standi að stofna nýtt flugfélag í stað Adria Airways sem varð gjaldþrota árið 2019.

10. apríl 2023
|
Azerbaijan Airlines hefur lagt inn staðfesta pöntun til Airbus í tólf farþegaþotur af gerðinni Airbus A320neo og A321neo en samningur um kaupin var undirritaður í höfuðborg landsins, Baku, á dögunum.

1. júní 2023
|
Nýtt breskt sprotaflugfélag, Global Airlines, hefur fest kaup á sinni fyrstu þotu sem er risaþota af gerðinni Airbus A380 sem mun hefja áætlunarflug frá Gatwick-flugvellinum í London næsta vor.

8. júní 2023
|
Senn styttist í að ungverska lágfargjaldafélagið Wizz Air taki við sinni tvö hundruðustu flugvél en við lok seinasta fjármálaárs, þann 31. mars sl. stóð flugflotinn í 179 flugvélum og samanstendur a

7. júní 2023
|
Þegar er farið að örla á seinkunum á samgöngum í Evrópu og hafa evrópsk yfirvöld varað þá aðila sem eiga hlut að máli að huga sem fyrst að því að grípa í taumana til að draga úr áhrifum sem gæti or

5. júní 2023
|
Rannsóknarnefnd flugslysa í Frakklandi hefur gefið frá sér skýrslu varðandi alvarlegt flugatvik sem átti sér stað á Charles de Gaulle flugvellinum í París fyrir tveimur og hálfu ári síðan.

5. júní 2023
|
Fyrri lendingarkeppni sumarsins á vegum Flugklúbbs Mosfellsbæjar fór fram í gær á Tungubökkum.

5. júní 2023
|
Icelandair hefur undirritað samstarfssamning við Turkish Airlines um sameiginlega farmiðaútgáfu sem þýðir að farþegar fá aðgang að áfangastöðum flugfélaganna beggja á einni bókun í gegnum bókunarkerf

1. júní 2023
|
Nýtt breskt sprotaflugfélag, Global Airlines, hefur fest kaup á sinni fyrstu þotu sem er risaþota af gerðinni Airbus A380 sem mun hefja áætlunarflug frá Gatwick-flugvellinum í London næsta vor.

1. júní 2023
|
SAS (Scandinavian Airlines) hefur opnað fyrir bókanir fyrir fyrstu flugferðir félagsins með rafmagnsflugvél þrátt fyrir að áformað sé að fyrsta rafmagnsflugið verði ekki flogið fyrr en árið 2028.

31. maí 2023
|
Air Greenland hefur neyðst til þess að taka tímabundið á leigu Boeing 777 þotu og Boeing 737 þotu eftir að nýja Airbus A330neo breiðþota félagsins varð fyrir atviki á flugvellinum í Kaupmannahöfn f