flugfréttir
Japan Airlines pantar yfir tuttugu Boeing 737 MAX þotur
Tölvugerð mynd af Boeing 737 MAX þotu í litum Japan Airlines
Japan Airlines hefur lagt inn pöntun til Boeing í 21 farþegaþotu af gerðinni Boeing 737 MAX 8 og mun flugfélagið japanska nota þoturnar til þess að endurnýja eldri þotur af gerðinni Boeing 737-800.
Boeing 737 MAX 8 þoturnar verða notaðar í innanlandsflugi og á styttri flugleiðum og verður sú fyrsta afhent til Japan Airlines árið 2026 og koma þoturnar með LEAP-1B hreyflum frá CFM International.
Japan Airlines er þriðja flugfélagið í Japan til þess að panta Boeing 737 MAX en ANA (All Nippon Airways) pantaði tuttugu Boeing 737 MAX 8 þotur á Farnborough flugsýningunni
í júlí í fyrra og þá lagði japanska flugfélagið Skymark Airlines inn pöntun í janúar
á þessu ári í fjórar Boeing 737 MAX 8 þotur.
Flugfloti Japan Airlines samanstendur í dag af 149 þotum frá Boeing og Airbus og eru í flotanum meðal annars að finna flugvélar af gerðinni Airbus A350, Boeing 737-800,
Boeing 767, Boeing 777 og Dreamliner.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.