flugfréttir
Fyrsta breiðþotan fyrir IndiGo máluð í litum félagsins
- Taka tvær Boeing 777-300ER þotur á leigu hjá Turkish Airlines
Fyrsta Boeing 777-300ER þotan í litum IndiGo var máluð á dögunum hjá Turkish Technic
Tyrkneska viðhaldsfyrirtækið Turkish Technic hefur lokið við að mála Boeing 777-300ER þotu í litum indverska lágfargjaldafélagsins IndiGo.
IndiGo hefur tekið tvær Boeing 777-300ER þotur á leigu frá Turkish Airlines og
er þetta í fyrsta sinn sem að lágfargjaldafélagið tekur í notkun breiðþotu en flugfloti
félagsins samanstendur eingöngu af þotum úr Airbus A320 fjölskyldunni auk ATR
skrúfuþotna.
Flugvélarnar verða leigðar til IndiGo með áhöfnum og koma þoturnar með sjö sætum
á viðskiptafarrými og 524 sætum á almennu farrými.
Báðar þoturnar eru í eigu flugvélaleigunnar AerCap og voru þær smíðaðar árið 2009 og
voru áður í flota Air Austral, Alitalia og því næst hjá Azur Air í Rússlandi.
IndiGo ætlar að nota þoturnar í áætlunarflugi á milli Delí og Istanbúl meðal annars.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.