flugfréttir
SAS í deilum við japanska flugvélaleigu
Airbus A350 þotan frá SAS sem deilurnar snúast um ber skráninguna SE-RSA
SAS (Scandinavian Airlines) á í heiftarlegum deilum þessa daganna við japanska flugvélaleigu vegna ágreinings um samkomulag er varðar leigu á Airbus A350 þotu í flota flugfélagsins.
Airbus A350 þotan hefur verið í geymslu á flugvellinum í Kaupmannahöfn frá því í janúar og er ein
af þeim flugvélum sem SAS neyddist til þess að taka úr umferð á meðan gjaldþrotameðferð félagsins
fór fram fyrir dómstólum í New York.
Nú vill SAS koma þotunni aftur í umferð og hefur félagið greitt nokkrar millifærslur til þess að greiða
þá leið sem hefur fallið í grýttan jarðveg hjá flugvélaleigunni sem á þotuna.
Fram kemur að ef SAS nær ekki sáttum við japönsku flugvélaleiguna getur það haft í för með sér
röskun á flugáætlun SAS yfir páskana er varðar langflugsáætlun félagsins og áætlunarflug til
Bandaríkjanna.
A350 þotan er ein af þeim fyrstu sem SAS fékk afhenta frá Airbus í Toulouse skömmu áður
en heimsfaraldurinn braust út en SAS seldi þotuna skömmu síðar til japanskrar flugvélaleigu sem leigði
félaginu aftur þotuna þangað til hún var kyrrsett vegna skulda.
Eins og staðan er núna vill SAS koma sér út úr leigusamningnum og kaupa hana og selja hana til banka
eins í Japan á meðan að flugvélaleigan vill leigja hana til annars flugfélags.
SAS hefur nokkra daga til þess að leysa vandann þar sem sumaráætlun félagsins er hafin með aukið
sætaframboð og aukna tíðni í flugi til Bandaríkjanna og til Asíu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.