flugfréttir

Langtímastefna í hávaðamildun um þrjá stærstu flugvellina

27. mars 2023

|

Frétt skrifuð kl. 12:27

Frá Heathrow-flugvellinum í London

Stjórnvöld í Bretlandi hafa farið af stað með verkefni sem miðar af því að þróa langtímastefnu er kemur að hávaðamildum á nóttunni í kringum þrjá stærstu flugvellina í London sem eru Heathrow, Gatwick og Stansted.

Samgönguráðuneyti Bretlands segir að sex vikna ráðgjafar- og ábendingartímabil sé farið í gang er kemur að næturflugi til og frá þessum flugvöllum sem verður notast við í þróun á framtíðarstefnu í hávaðamildun sem tekur í gildi frá og með október árið 2025.

„Það er engin vafi á því að flug að næturlagi hefur áhrif á þá íbúa sem búa nálægt flugvöllum og sérstaklega þá sem búa undir aðflugslínu en á sama tíma og flugvélar eru sífellt að verða hljóðlátari þá er tækifæri á borði til þess að styðja flugiðnaðinn án þess að það hafi áhrif á lífsgæði fólks“, segir Charlotte Sarah Emily Vere, flugmálaráðherra Bretlands.

Næturflugstakmarkanir hafa verið í gildi á flugvöllunum þremur í yfir 40 ár og voru takmarkanirnar seinast uppfærðar árið 2017 og var háværustu flugvélartegundunum þá til að mynda bannað að fljúga um flugvellina þrjá milli klukkan 23:00 og 7:00.

Fjöldi undanþága voru gerðar í fyrrasumar vegna mikilla raskanna á flugi sem varð til þess að óvenju mikill fjöldi af komu- og brottfararflugi fór um flugvellina þrjá eftir klukkan 23:00 og voru margir íbúar sem kvörtuðu undan hávaða vegna þessa.

Flugmálaráðherra Bretlands segir að nauðsynlegt sé að taka seinasta sumar með inn í reikninginn til þess að uppfæra reglugerðir sem snúa að undanþágum og kemur fram að verið sé að vinna í þeim málum og verða niðurstöður varðandi það birtar síðar á þessu ári.

Á síðasta ári birtu stjórnvöld í Hollandi til að mynda tillögur um takmarkanir á flugi um Schiphol-flugvöllinn í Amsterdam sem var hluti að nýrri stefnu stjórnvalda og er þegar gert ráð fyrir færri flugferðum um Schiphol næsta vetur.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga