flugfréttir
Flugvöllurinn í Beirút í tveimur tímabeltum í einu
- Tvær mismunandi klukkur á flugvellinum ruglar farþega í ríminu

Klukkan 14:30 í dag að íslenskum tíma var klukkan á flugvellinum í Beirút 16:30 og líka 17:30
Ekki ber öllum klukkum saman um hvað tímanum líður á flugvellinum í Beirút í Líbanon sem sýnir mismunandi klukkur þessa stundina.
Flugfarþegum sem eiga leið um Beirút er ráðlagt að vera vissir um hvenær flugið er á áætlun þar sem
flugvöllurinn sýnir tvær mismunandi klukkur á upplýsingaskjáum.
Þetta undarlega vandamál, sem er ekki bara að finna á flugvellinum heldur allstaðar í Líbanon þessa daganna,
má rekja til ósamkomulags milli mismunandi trúarhópa varðandi sumartímann sem breyttist í gær, 26. mars.
Ruglingurinn er sprottinn upp frá yfirlýsingu forsetisráðherra landsins, Najib Mikati, sem tilkynnti þremur
dögum áður en breytt var yfir í sumartímann að til stæði að bíða með að breyta klukkunni í Líbanon
þangað til 21. apríl.
Ekki var nein ástæða gefin fyrir biðinni á sumartímanum en talið er að verið sé að koma til móts við múslima
svo þeir geti rofið föstu einni klukkustund fyrr vegna Ramadan.
Þessi ákvörðun hefur verið harðlega gagnrýnd af mörgum leiðtogum og ráðamönnum í Líbanon
sem spyrja sig út í hvort ákvörðun sem þessi sé lögleg og hafa farið með málið fyrir líbanska þingið.
Eins og staðan er núna er flugvöllurinn í Beirút í tveimur tímabeltum og hefur flugfélagið Middle East Airlines
(MEA) auglýst flugáætlun sína einni klukkustund á undan og verður því breytt þann 21. apríl.
Einhverjir farþegar hafa dreift myndum og myndskeiðum af upplýsingaskjám á flugvellinum í Beirút
þar sem sjá má tvær mismunandi klukkur sem veldur mörgum ruglingi.
Myndband af Twitter:
🇱🇧🤨 Attention si vous prenez l’avion à l’aéroport de Beyrouth.
— air plus news (@airplusnews) March 26, 2023
Pour satisfaire tout le monde, l’aéroport a choisi d’utiliser deux horaires 😂
⏱️Hier, le Premier ministre démissionnaire du Liban avait décidé sans explication de retarder le changement d’heure. Une partie du pays… pic.twitter.com/eouUfD8qrm


6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.