flugfréttir

Blue Line Aviation pantar 55 kennsluvélar frá Piper

- Endurnýja allan flugkennsluflotann með Piper Archer TX og Piper Seminole

29. mars 2023

|

Frétt skrifuð kl. 13:16

Piper Archer TX flugvélin

Flugvélaframleiðandinn Piper Aircraft hefur fengið pöntun frá Blue Line Aviation í 55 kennsluflugvélar af gerðinni Piper Archer TX og Piper Seminole sem verða afhentar á næstu árum til höfuðstöðva skólans í Smithfield í Norður-Karólínu með möguleika á 60 kennsluflugvélum til viðbótar.

Framleiðandinn segir að flugskólinn ætli að skipta út öllum kennsluflugsflotanum á næstu fjórum árum sem samastendur bæði af eins hreyfils og tveggja hreyfla flugvélum og verða þær fyrstu afhentar á síðari helming þessa árs.

Blue Line Aviation flugskólinn var stofnaður árið 2012 og ætlar hann að bregðast við aukinni eftirspurn eftir flugnámi með fjölgun kennsluvéla við skólann á Johnson County flugvellinnum í Smithfield auk þess sem einhverjar kennsluflugvélar verða gerðar út frá Winter Haven í Flóróda.

„Blue Line Aviation flugskólinn hefur orðið byltingarkenndur á flugkennslumarkaðnum og okkar hlakkar til að hjálpa þeim við að vaxa og dafna og vera hluti af stefnu þeirra við að veita skilvirka flugkennslu með einni af glæsilegustu kennsluflugvélum í heimi“, segir Ron Gunnarson, varaformaður yfir sölu- og markaðsdeild Piper Aircraft.

Pöntunin samanstendur einnig af Piper Seminole flugvélum

Gunnarson segir að Piper Archer TX veiti flugnemum allt það sem þarf er kemur að öruggri flugkennslu en flugvélin kemur með 180 hestafla mótorum frá Lycoming og nær farflugshraða upp á 128 hnúta.

Fram kemur í yfirlýsingu frá Piper að tveggja hreyfla Seminole-flugvélin auðveldi flugnemum flugkennslu með tveimur hreyflum en sú flugvél nær farflugshraða upp á 162 hnúta og er sérstaklega hönnuð fyrir skilvirka, þægilega og örugga fjölhreyflaþjálfun.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga