flugfréttir
Komst um borð í flugvél án vegabréfs og brottfararspjalds
Frá flugvellinum í Dublin
Karlmaður á fimmtugsaldri tókst í vikunni að fara í gegnum flugvöllinn í Dublin án þess að hafa neitt vegabréf og brottfararspjald og tókst honum að fara alla leið um borð í farþegaflugvél írska flugfélagsins Aer Lingus sem var að búa sig undir brottför til Birmingham.
Maðurinn, Abdul Ahmead að nafni, sem er 48 ára, var leiddur fyrir dómara í gær þar sem lesin var yfir honum
ákæra en í ljós kom að maðurinn hafði ekki dvalarleyfi á Írlandi.
Atvikið átti sér stað sl. mánudag (þann 28. mars) og tókst honum að komast í gegnum öryggisleit og inn
í flugstöðina Terminal 2 og vinnur stjórn flugvallarins að því að rannsaka atvikið ásamt lögreglunni í Dublin.
Talsmaður flugvallarins staðfestir að þeir hafi náð að hafa hendur í hári manns sem hafði komist
í gegnum öryggisleit og áfram út í flugvél án þess að hafa vegabréf né brottfararspjald í fórum sínum.
Manninum hefur verið gert að greiða sekt upp á 700 evrur vegna brotsins sem samsvarar 104.000 krónum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.