flugfréttir
Tilraunir með að telja farþega um borð með aðstoð gervigreindar
Tilraunirnar með gervigreindartalningu munu standa yfir hjá SWISS International Air Lines fram í júní
Flugfélagið SWISS International Air Lines ætlar að hefja prófanir með gervigreind til þess að telja farþega um borð í flugvélum sínum.
Til stendur að koma fyrir myndavélabúnaði um borð í nokkrum flugvélum félagsins og verða gerðar tilraunir með
að láta gervigreindarbúnað telja farþegana sem ganga um borð. Ef vel tekst til gæti búnaðurinn því talið farþega
í stað þess að áhöfnin framkvæmi talningu fyrir brottför.
SWISS ætlar að framkvæma tilraunirnar frá apríl fram í júní
á þessu ári og verða upptökurnar notaðar til þess að sjá hvernig gervigreindartæknin nær
að framkvæma talningu við mismunandi birtuskilyrði og aðstæður.
Fram kemur að tilraunirnar verða gerðar í samráði við Evrópusambandið og persónuvernd
og verður öllum farþegum upplýst um gervigreindartalninguna og verður myndefni ekki notað
á neinn annan hátt.
Eftir að tilraunum er lokið mun flugfélagið því næst taka ákvörðun um hvort að tæknin verði innleidd í kjölfarið um borð í öllum flugvélum félagsins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.