flugfréttir
Azerbaijan Airlines pantar 12 þotur frá Airbus

Tölvugerð mynd af Airbus A320neo í litum Azerbaijan Airlines
Azerbaijan Airlines hefur lagt inn staðfesta pöntun til Airbus í tólf farþegaþotur af gerðinni Airbus A320neo og A321neo en samningur um kaupin var undirritaður í höfuðborg landsins, Baku, á dögunum.
Azerbaijan Airlines hefur í dag þrjár A320neo þotur í flotanum sem félagið fékk afhentar fyrr á þessu ári
en tvær þeirra eru í flota dótturfélagsins Buta Airways en sú þriðja hefur að undanförnu verið í viðhaldsskoðun.
Að öðru leyti samanstendur floti minni flugvélategunda af fjórum Airbus A319 þotum og sex A320 þotum en
stefna Azerbaijan Airlines er að fara alfarið yfir í þotur úr A320neo fjölskyldunni.
Þá hefur félagið tvær Airbus A340-500 breiðþotur og er flugfélagið það eina í heiminum sem hefur þá
flugvélategund í flotanum en flugfélagið hefur þó ekki notað þær í áætlunarflugi frá því í janúar á þessu ári.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.