flugfréttir
Setja seinustu A340-200 breiðþotuna í flotanum á sölu

Airbus A340-200 þota frá Aerolíneas Argentinas
Argentínska flugfélagið Aerelóneas Argentinas hefur sett seinustu Airbus A340-200 breiðþotuna í flotanum á sölu en þotan hefur verið í geymslu á flugvellinum í Buenos Aires frá því hún var tekin úr notkun árið 2014.
Þotan, sem ber skráninguna LV-ZRA, var smíðuð árið 1995 og var hún upphaflega
afhent til Cathay Pacific en fór því næst í flota Philippine Airlines og kom til Aerolíneas Argentinas árið 1999.
Flugfélagið notaði hana í áætlunarflugi í 15 ár og var hún meðal fjögurra breiðþotna af þessari gerð
sem félagið notaði en hinar þrjár enduðu í flugvélakirkjugarði í Mojave-eyðimörkinni.
Ekki er vitað hvort að flugvélin sé enn í flughæfu ástandi eða hvort hún verður seld til niðurrifs í varahluti
en árið 2017 hafði flugvélinni verið flogið 66.287 tíma frá upphafi og farið 8.203 flugleggi.
Aerolíneas Argentinas óskar eftir tilboðum í þotan frá flugvélaleigum sem bendir til þess að þotan sé flughæf.
Flugfélagið argentínska hafði einnig níu breiðþotur af gerðinni A340-300 sem félagið notaði í reglubundnu
áætlunarflugi til ársins 2020 en breiðþotufloti félagsins í dag samanstendur af átta Airbus A330-200 breiðþotum
og þá á félagið von á fjórum nýjum Airbus A330neo þotum af gerðinni A330-900.


6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.