flugfréttir

Setja seinustu A340-200 breiðþotuna í flotanum á sölu

11. apríl 2023

|

Frétt skrifuð kl. 07:29

Airbus A340-200 þota frá Aerolíneas Argentinas

Argentínska flugfélagið Aerelóneas Argentinas hefur sett seinustu Airbus A340-200 breiðþotuna í flotanum á sölu en þotan hefur verið í geymslu á flugvellinum í Buenos Aires frá því hún var tekin úr notkun árið 2014.

Þotan, sem ber skráninguna LV-ZRA, var smíðuð árið 1995 og var hún upphaflega afhent til Cathay Pacific en fór því næst í flota Philippine Airlines og kom til Aerolíneas Argentinas árið 1999.

Flugfélagið notaði hana í áætlunarflugi í 15 ár og var hún meðal fjögurra breiðþotna af þessari gerð sem félagið notaði en hinar þrjár enduðu í flugvélakirkjugarði í Mojave-eyðimörkinni.

Ekki er vitað hvort að flugvélin sé enn í flughæfu ástandi eða hvort hún verður seld til niðurrifs í varahluti en árið 2017 hafði flugvélinni verið flogið 66.287 tíma frá upphafi og farið 8.203 flugleggi.

Aerolíneas Argentinas óskar eftir tilboðum í þotan frá flugvélaleigum sem bendir til þess að þotan sé flughæf.

Flugfélagið argentínska hafði einnig níu breiðþotur af gerðinni A340-300 sem félagið notaði í reglubundnu áætlunarflugi til ársins 2020 en breiðþotufloti félagsins í dag samanstendur af átta Airbus A330-200 breiðþotum og þá á félagið von á fjórum nýjum Airbus A330neo þotum af gerðinni A330-900.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga