flugfréttir
Hefja tímabundið áætlunarflug frá Færeyjum til New York
- Fljúga vikulega í sex vikur til Stewart International flugvallarins
Airbus A320neo þota frá Atlantic Airways
Færeyska flugfélagið Atlantic Airways hefur tilkynnt að til stendur að hefja tímabundið áætlunarflug frá Færeyjum til New York í ágúst.
Til stendur að fyrsta flugið verði flogið frá Vágar til Stewart International flugvallarins þann 22. ágúst
fram til 4. október og er um að ræða fyrsta langflug félagsins sem hingað til hefur eingöngu
flogið til 10 áfangastaða í Evrópu í millilandaflugi.
Atlantic Airways áætlar að hefja farmiðasölu um miðjan maí og verður flogið einu sinni
í viku á þriðjudögum til New York og á miðvikudögum til baka til Vágar og verður flugtíminn
um sex klukkustundir.
Flugfélagið mun nota Airbus A320neo þotu fyrir New York flugið en félagið hefur í dag
tvær slíkar í flotanum og er von á tveimur til viðbótar af þeirri gerð en einnig hefur flugfélagið eina Airbus A320 þotu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.