flugfréttir
Fljúga þotunni þrátt fyrir miklar deilur við flugvélaleigu
- Japönsk flugvélaleiga vill fá Airbus A350-900 þotu til baka úr flota SAS
Airbus A350-900 þotan sem um ræðir ber skráninguna SE-RSA
SAS (Scandinavian Airlines) hefur tekið aftur í notkun tiltekna Airbus A350-900 þotu þrátt fyrir að flugfélagið stendur nú í miðjum deilum við japanska flugvélaleigu sem á þotuna.
Þotan, sem ber skráninguna SE-RSA, hefur verið í geymslu á flugvellinum í Kaupmannahöfn frá því í janúar og er ein af þeim flugvélum sem SAS neyddist til þess að taka úr umferð á meðan gjaldþrotameðferð félagsins fór fram fyrir dómstólum í New York.
Á meðan eigandi þotunnar, sem er japanska flugvélaleigan JPA No. 199 Co. Ltd, vill fá þotunni skilað
þá hefur SAS að undanförnu flogið þotunni sl. daga frá Kaupmannahöfn
til Shanghai, Los Angeles, Newark og til Tókýó.
Flugvélaleigan japanska sakar SAS um að hafa endursamið um áframhaldandi leigu við þriðja aðila, sem er millileiguaðili og
er breskt útibú japanska bankans MUFG Ltd. í London, og segir flugvélaleigan að SAS sé með þessu að víkja sér frá skilmálum
og reglugerðum Höfðaborgarsáttmálann.
Danskt milliliðafyrirtæki, sem fer með leigumál hjá SAS, segir að flugfélagið sé ekki að reyna að
festa kaup á þotunni með krókeleiðum, eins og japanska flugvélaleigan vill halda fram, en tekur
fram að SAS vill hafa þotuna áfram í flotanum á nýjum leigusamningi.
Flugvélaleigan hefur farið með málið fyrir dómstóla og andmælir milliliðafyrirtækið dómsmálinu
á þeim forsendum að félagið hafi rétt á afnotum af þotunni á tvískiptum leigusamningum sem
felur í sér skammtímaleigu fyrst um sinn og langtímaleigu þegar SAS er komið með nægt fé
til þess að standa við þann samning.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.