flugfréttir

Vilja að A321XLR fái sömu samþykkt og A321neo hjá FAA fyrir neyðarlækkun

13. apríl 2023

|

Frétt skrifuð kl. 12:02

Airbus A321XLR þotan

Airbus hefur beðið bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) um leyfi til þess að samþykkja sömu eiginleika fyrir Airbus A321XLR þotuna er kemur að snöggri lækkun í neyðartilfellum og gildir fyrir A321neo þotuna þrátt fyrir að loftaflfræðilega sé smávægilegur munur á A321XLR þotunni.

Samkvæmt tölum yfir afköst og eiginleika A321neo þotunnar kemur fram að sú þota geti lækkað snögglega flughæð úr 39.800 fetum niður í 10.000 fet á 2,6 mínútum.

Airbus gerði hinsvegar smávægilegar breytingar á A321XLR þotunni með aukabúnaði á skrokk og vængjum í þeim tilgangi að auka farflugshraða hennar en þrátt fyrir það þá eykst heildarviðnám þotunnar um 0.7% samanborið við A321neo þotuna.

Er kemur að snöggri lækkun eykst viðnámið eilítið meira en Airbus telur að á heildina litið þá séu mjög litlar líkur á því að viðnámið breyti tölunni það mikið í skyndilegri lækkun í neyðartilfellum að ástæða sé til þess að gefa út aðra samþykkt en er skráð fyrir A321neo þotuna.

Airbus segir að A321XLR og A321neo séu með sömu flugstjórnareiginleika í neyðarlækkun, sama þrýstingsstjórnkerfi, sömu hraðatakmörk í lækkun og sömu hreyfla og á þeim forsendum eigi XLR tegundin að fá sömu gildi og samþykktir frá FAA líkt og A321neo er kemur að reglugerðum varðandi þrýstingsjöfnun um borð.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga