flugfréttir

Volga-Dnepr gert að greiða BOC Aviation 55 milljarða í sekt

- Neituðu að skila þremur Boeing 747-8F fraktþotum

13. apríl 2023

|

Frétt skrifuð kl. 13:15

Boeing 747-8F fraktþota frá AirBridge Cargo

Dómstóll í Bandaríkjunum hefur skipað rússneska flugfélaginu Volga-Dnepr Group til þess að greiða flugvélaleigunni BOC Aviation yfir 400 milljónir dala í sekt vegna brots á leigusamningum er varðar þrjár Boeing 747-8F fraktþotur í flota dótturfélagsins AirBridge Cargo.

Aðeins einni af 747-8F fraktþotunum þremur var skilað og er hún í dag í rekstri hjá Air Belgium en hinar tvær eru ennþá fastar í Rússlandi.

Samkvæmt upplýsingum þá hefur AirBridge Cargo tólf Boeing 747-8F fraktþotur sem eru í geymslu á Sheremetyevo-flugvellinum í Moskvu og meðal þeirra eru tvær þotur, VQ-BFU og VQ-BIN, sem BOC Aviation hefur ekki náð að leysa úr haldi.

Réttarhöld fóru fram þann 3. apríl sl. eftir að BOC Aviation lagði inn málið til dómstóla í mars í fyrra skömmu eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu.

BOC Aviation ákvað að rifta leigusamningnum en við það ákvað AirBridge Cargo að koma þeim þotum, sem voru staðsettar utan Rússlands, aftur til Moskvu og var tveimur þotum, sem voru staðsettar í Hong Kong og í Kína, flogið til Rússlands og neitaði fyrirtækið að láta þær af hendi.

BOC Aviation fór fram á að AirBridge Cargo myndi taka þoturnar úr umferð þar sem til stæði að sækja þær en flugvélaleigan komst að því í gegnum Flightradar.24.com vefsíðuna að fyrirtækið hefði flogið þeim frá Hong Kong og Kína til Rússlands þrátt fyrir fyrirmæli um að þær yrðu kyrrsettar.

Þá kom í ljós að önnur þotan hefði lent í Dubai og haft þar stutta viðdvöl í nokkrar klukkustundir á leið sinni frá Kína til Moskvu en þotan birtist aðeins á Flightradar24 í stutta stund skömmu áður en hún lenti í Dubai og voru ADS-B upplýsingar um hana ekki tiltækar fyrr en rétt fyrir lækkun að Dubai.

Það var dómari í New York sem kvað upp dóminn, BOC Aviation í vil, en sektin nemur 406.2 milljónum Bandaríkjadala sem samsvarar 55 milljörðum króna.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga