flugfréttir

Boeing uppgötvar nýtt vandamál varðandi 737 MAX þoturnar

- Gera tímabundið hlé á afhendingum á einhverjum MAX þotum

14. apríl 2023

|

Frétt skrifuð kl. 11:35

Vandamálið nær til Boeing 737 MAX þotna af gerðinni 737 MAX 7, MAX 8 og MAX-8-200

Nýtt vandamál hefur komið upp varðandi framleiðslu á Boeing 737 MAX þotunum sem gæti orðið til þess að Boeing neyðist til að framkvæma lagfæringu á hundruðum MAX þotum.

Það var fyrirtækið Spirit AeroSystems sem gerði Boeing viðvart og snýr vandamálið að því fyrirtæki sem framleiðir íhluti í 737 MAX þoturnar en fram kemur að Spirit AeroSystems hafi orðið vart við að „óstaðlað framleiðsluferli“ hafi verið notað þegar stél var sett saman við aftasta hluti skrokksins á tilteknu tímabili.

Vandamálið nær til ákveðins fjölda af Boeing 737 MAX 7 þotum, MAX 8, MAX-8-200 auk nokkurra P-8 Poseidon þotna þrátt fyrir að sú flugvél byggir á Boeing 737NG (Next Generation) en vandamálið nær ekki til Boeing 737 MAX 8 þotna.

Fram kemur að vandamálið gæti náð til Boeing 737 MAX flugvéla sem voru smíðaðar á seinustu fjórum árum en samkvæmt tölfræði frá fyrirtækinu Original Equipment Manufacturer (OEM) þá voru 879 Boeing 737 MAX þotur smíðaðar á fjögurra ára tímabili frá 1. janúar 2019 fram til dagsins í dag.

Í yfirlýsingu segir að vandamálið sé ekki þess eðlis að nein ógn stafar af og geti þær MAX þotur, sem vandamálið nær til, haldið áfram í umferð þótt lagfæring sé þörf á næstunni.

Boeing er þessa daganna að meta ítarlega umfang vandamálsins og komast að því hvort þörf sé á því að gera hlé á afhendingum og hvort að flugfélög þurfi að framkvæmda skoðanir tafarlaust á sínum þotum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga