flugfréttir

TaxiBot leysir af akstur flugvéla undir þeirra eigin afli frá hreyflum

- Air India tekur formlega í notkun dráttarökutæki sem flugmenn stjórna

18. apríl 2023

|

Frétt skrifuð kl. 16:14

Dráttarökutækið er þróað af fyrirtækinu TaxiBot en með því mun sparast mikið eldsneyti sem annars hefði farið í akstur á flugvellinum með afli frá hreyflunum

Air India er byrjað að nota dráttarökutæki á tveimur flugvöllum á Indlandi sem stjórnað verður af flugmönnunum og mun ökutæki dragar þotur alveg frá brottfararhlið eða flugvallarstæði, út á flugbraut og einnig að flugstöð eftir lendingu.

Dráttarökutækið er þróað af fyrirtækinu TaxiBot en með því mun sparast mikið eldsneyti sem annars hefði farið í akstur á flugvellinum en fyrst um sinn mun Air India nota TaxiBot fyrir Airbus A320 þotur á flugvöllunum í Delí og Bengaluru.

Air India framkvæmdi tilraunir með TaxiBot fyrir fjórum árum síðan, eða í desember 2019, og hefur flugfélagið indverska ráðfært sig við flugvallarráðgjafarfyrirtækið KSU Aviation sem vinnur við innleiðingarferli á TaxiBot.

TaxiBot var upphaflega þróað af ísraelska fyrirtækinu Israel Aerospace Industries í samstarfi við fyrirtækið TLD og er ökutækið hálfsjálfvirkt ökutæki sem gengur bæði fyrir díselolíu og rafmagni en með þessu sparast umtalsverðir fjármunir þar sem ökutækið notar 95% minna eldsneyti heldur en ef flugvél hefði ekið fyrir sínu eigin afli frá hreyflum eins og tíðkast.

Til eru tvenns konar útgáfur af TaxiBot en ein tegundin er hönnuð til þess að draga minni og meðalstórar farþegaþotur á borð við Airbus A320 á meðan öflugri útgáfur geta dregið breiðþotur og risaþotur á borð við Airbus A380.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga