flugfréttir
Röskun á flugi í Berlín og Hamborg vegna vegna verkfalls

Frá Brandenburg-flugvellinum í Berlín
Mikil röskun er á flugi um flugvellina í Berlín og í Hamborg í dag vegna verkfalls eftir að þýska verkalýðsfélagið Verdi tilkynnti um sólarhringsverkfall sem skall á í nótt.
Það eru starfsmenn sem sinna öryggisvörslu og flugvallarstarfsmenn sem boðuðu til verkfallsaðgerða
vegna baráttu um bættari kjör og hefur verkfallið áhrif á allt flug um Brandenburg-flugvöllinn auk þess sem röskun hefur verið á flugi um flugvöllinn
í Hamborg.
Brandenburg-flugvöllurinn aflýsti öllum brottförum í dag þótt einhverjar flugvélar fá að lenda en alls
hefur 240 brottförum verið aflýst.
Verkfallsaðgerðir áttu sér einnig stað í seinustu viku í Þýskalandi en þá varð röskun á flugi vegna verkfalla
á flugvöllunum í Dusseldorf, Hamborg, Köln og í Stuttgart.


6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.