flugfréttir
Ætla að tvöfalda flugflotann á næstu árum og breyta um stefnu

Boeing 777 þota frá Etihad Airways á flugvellinum í Abu Dhabi
Etihad Airways ætlar sér að tvöfalda flugflotann upp í 150 flugvélar fyrir lok þessa áratugar og með því þrefalda farþegafjöldann upp í 30 milljónir farþega á ári.
Antonoaldo Neves, framkvæmdarstjóri Etihad Airways, segir að meginaðferðin
við að ná þessi markmiði sé að einblína á langflug og meðallangar flugferðir í stað þess
að fljúga ofurlöng flug heimshorna á milli eins og flugfélagið hefur gert hingað til en
þar er samkepnnin mjög mikil og þá aðallega er kemur að samkeppninni við
Emirates og Qatar Airways.
„Stefnan okkar er mjög skýr. Við ætlum ekki að fljúga til þeirra staða sem skila ekki hagnaði“, segir
Neves sem tekur fram að Etihad Airways ætli sér að einblína betur á tengingar við Kína, suðausturhluta
Asíu, Indland og Evrópu og austurströnd Bandaríkjanna.
Neves var gerður að framkvæmdarstjóra Etihad Airways í október í fyrra eftir að
ríkiseignasjóðurinn í Abu Dhabi tók yfir rekstri flugfélagsins en Neves náði til að mynda
að snúa rekstri portúgalska flugfélagsins TAP Air Portugal úr tapi yfir í hagnað á sínum tíma.
Etihad Airways ákvað að rísa úr öskunni eftir heimsfaraldurinn með krefjandi
viðsnúningsáætlun sem var kynnt árið 2021 og eitt af markmiðunum var að einblína á þotur
á borð við Boeing 787 og draga úr mjög löngum flugferðum.
Tony Douglas, fyrrum framkvæmdarstjóri Etihad Airways, sagði í viðtali í ágúst í fyrra
að flugfélagið hefði lært af mistökum sínum með því að auka umsvifin of hratt og væri
núna verið að stækka reksturinn á heilbrigðari fasa í takt við þá eftirspurn sem er hverju
sinni.
Flugfloti Etihad Airways samanstendur í dag af 93 flugvélum og þá bíður félagið þess
að fá 99 afhentar til viðbótar á næstunni en til að mynda á flugfélagið von á 32
Dreamliner-þotum, 26 þotum af gerðinni Airbus A321neo, fimmtán Airbus A350-1000 þotum og sex
Boeing 777-9 þotum.


6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.