flugfréttir

Ætla að tvöfalda flugflotann á næstu árum og breyta um stefnu

2. maí 2023

|

Frétt skrifuð kl. 11:05

Boeing 777 þota frá Etihad Airways á flugvellinum í Abu Dhabi

Etihad Airways ætlar sér að tvöfalda flugflotann upp í 150 flugvélar fyrir lok þessa áratugar og með því þrefalda farþegafjöldann upp í 30 milljónir farþega á ári.

Antonoaldo Neves, framkvæmdarstjóri Etihad Airways, segir að meginaðferðin við að ná þessi markmiði sé að einblína á langflug og meðallangar flugferðir í stað þess að fljúga ofurlöng flug heimshorna á milli eins og flugfélagið hefur gert hingað til en þar er samkepnnin mjög mikil og þá aðallega er kemur að samkeppninni við Emirates og Qatar Airways.

„Stefnan okkar er mjög skýr. Við ætlum ekki að fljúga til þeirra staða sem skila ekki hagnaði“, segir Neves sem tekur fram að Etihad Airways ætli sér að einblína betur á tengingar við Kína, suðausturhluta Asíu, Indland og Evrópu og austurströnd Bandaríkjanna.

Neves var gerður að framkvæmdarstjóra Etihad Airways í október í fyrra eftir að ríkiseignasjóðurinn í Abu Dhabi tók yfir rekstri flugfélagsins en Neves náði til að mynda að snúa rekstri portúgalska flugfélagsins TAP Air Portugal úr tapi yfir í hagnað á sínum tíma.

Etihad Airways ákvað að rísa úr öskunni eftir heimsfaraldurinn með krefjandi viðsnúningsáætlun sem var kynnt árið 2021 og eitt af markmiðunum var að einblína á þotur á borð við Boeing 787 og draga úr mjög löngum flugferðum.

Tony Douglas, fyrrum framkvæmdarstjóri Etihad Airways, sagði í viðtali í ágúst í fyrra að flugfélagið hefði lært af mistökum sínum með því að auka umsvifin of hratt og væri núna verið að stækka reksturinn á heilbrigðari fasa í takt við þá eftirspurn sem er hverju sinni.

Flugfloti Etihad Airways samanstendur í dag af 93 flugvélum og þá bíður félagið þess að fá 99 afhentar til viðbótar á næstunni en til að mynda á flugfélagið von á 32 Dreamliner-þotum, 26 þotum af gerðinni Airbus A321neo, fimmtán Airbus A350-1000 þotum og sex Boeing 777-9 þotum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga