flugfréttir

Þriðjungur A220 flotans úr umferð vegna varahlutaskorts

- Telur að skortur á varahlutum í hreyfla eigi eftir að vara í töluverðan tíma

4. maí 2023

|

Frétt skrifuð kl. 12:57

Airbus A220 þota frá SWISS International Air Lines

Einn þriðji af öllum þeim Airbus A220 þotum sem SWISS International Air Lines hefur í flota sínum hafa verið kyrrsettar að undanförnu vegna skorts á varahlutum.

Carsten Spohr, framkvæmdarstjóri Lufthansa Group, móðurfélag SWISS, segir að skortur á varahlutum sé vandamál sem eigi eftir að vera viðvarandi á næstu árum og eigi það eftir að hamla enn frekari umsvifum í kjölfar heimsfaraldursins.

„Ég hef starfað í 30 ár í flugiðnaðinum og ég hef ekki séð neitt þessu líkt“, sagði Spohr í ávarpi er hann fjallaði um vandamálið þegar afkomuskýrsla Lufthansa Group fyrir fyrsta ársfjórðung var kynnt.

Vandamálið má rekja til hreyflaframleiðandans Pratt & Whitney sem framleiðir PW1500G hreyflana fyrir A220 þoturnar en Spohr segir að vandamálið hafi einnig haft áhrif á Lufthansa sem hefur þurft að kyrrsetja þrjár splunkunýjar þotur úr A320neo fjölskyldunni í flota félagsins.

Vegna vandans þá hefur SWISS International Air Lines tekið á leigu sex Airbus A220-300 þotur frá airBaltic þar sem lettneska flugfélagið hefur slíkar þotur tiltækar til að leigja út en það flugfélag hefur orðið fyrir barðinu á innrásinni í Úkraínu og ekki haft þörf fyrir að nota allar þoturnar í flotanum.

Spohr segir að vandamálið hjá Pratt & Whitney sé keðjuverkandi skortur hjá framleiðendum sem framleiða íhluti í hreyflana og hafa þeir framleiðendur ekki enn náð að koma sinni framleiðslu á nægilegt skrið líkt og var fyrir heimsfaraldurinn.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga