flugfréttir

Ríkisstyrkir til Lufthansa og SAS í Covid-19 brutu í bága við lög

- Dómstóll ESB snýr við úrskurði um leyfi til styrkja að beiðni Ryanair

11. maí 2023

|

Frétt skrifuð kl. 07:28

Dómur í málinu var kveðinn upp í gær í Lúxemborg

Dómstóll Evrópusambandsins í Lúxemborg hefur ógilt niðurstöður framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins sem gaf grænt ljós á ríkisstyrk til SAS og Lufthansa í heimsfaraldrinum og dæmt því Ryanair í vil og orðið að ósk lágfargjaldarfélagsins írska sem áfrýjaði niðurstöðunni varðandi leyfið fyrir styrkjunum.

Í málsgögnum kemur fram að þýska ríkið fór fram á leyfi til að setja 6 milljarða evra í rekstur Lufthansa í formi ríkisstyrks en niðurstöðunni var meðal annars mótmælt af þýska flugfélaginu Condor og þá var einnig ógilt leyfi ríkisstjórna Danmerkur og Svíþjóðar til þess að veita SAS styrk upp á 1 milljarð evra.

Talsmaður Ryanair segir að niðurstaða dómstóls Evrópusambandsins staðfestir að framkvæmdarstjórn ESB verði að sýna heiðarleika og rétt fordæmi þegar kemur að leyfisveitingu fyrir opinberum styrkjum til flugfélaga og sé ekki réttlátt að mismuna flugfélögum og gera upp á milli þeirra.

Fram kemur að leyfi fyrir styrkveitingu frá þýska ríkinu til Lufthansa hafi brotið í bága við nokkrar reglugerðir og kröfur sem lög gera ráð fyrir en Lufthansa endurgreiddi styrkinn til baka til þýska ríkisins og lauk þeirri endurgreiðslu árið 2021.

Frekar óljósar eru afleiðingarnar sem lúta að þeim styrk sem SAS fékk þar sem flugfélagið fór fram á greiðslustöðvun og gjaldþrotameðferð í Bandaríkjunum í fyrra.

Síðastliðin þrjú ár hefur Ryanair barist ítarlega fyrir styrkveitingum til flugfélaga vegna heimsfaraldursins og sent inn 20 kvartanir og umsóknir um áfrýjanir á niðustöðu mála en með mjög takmörkuðum árangri.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga