flugfréttir
Hjólastell brotnaði af í lendingu á júmbó-þotu hjá Cargolux
Hjólastellið endaði utan brautar fyrir framan flugskýli Cargolux
Hjólastell brotnaði undan Boeing 747 fraktþotu hjá Cargolux í lendingu í gær í Lúxemborg en flugmenn þotunnar höfðu tilkynnt um vandamál með lendingarbúnaðinn þar sem ekki náðist að taka upp eitt hjólastellið eftir flugtak.
Þotan, sem er af gerðinni Boeing 747-400F, var nýfarin í loftið áleiðis til Chicago þegar flugmennirnir tilkynntu að þeir yrðu að
snúa við þar sem miðjuhjólastellið, hægra megin, hafði ekki farið upp eftir flugtak.
Þotan hætti að klifra í 10 þúsund fetum og lenti hún aftur í Lúxemborg 50 mínútum síðar en í lendingunni brotnaði
hjólastellið af í heilu lagi og skoppaði á brautinni og staðnæmdist við flugbrautina fyrir utan flugskýli Cargolux.
Atvikið átti sér stað seinnipartinn í gær á Findel-flugvellinum
í Lúxemborg
Í yfirlýsingu frá Cargolux kemur fram að lendingin hafi tekist giftusamlega þrátt fyrir að hjólið brotnaði af
í lendingunni og að engan hafi sakað.
Myndband, sem flugvallarstarfsmenn náðu á símamyndavél, hefur verið í dreifingu á samfélagsmiðlum þar sem
sést hvar hjólastellið brotnar af og skoppar á brautinni.
Loka þurfti flugbrautinni um stund í kjölfar atviksins og þurftu nokkrar flugvélar frá að hverfa vegna þessa. Rannsókn
á atvikinu er nú þegar hafin.
Flugvélin, sem ber skráninguna LX-OCV, var afhent til Cargolux árið 1999 en fraktflugfélagið hefur átta slíkar í flota sínum
auk sex af gerðinni 747-400ERF og fjórtán af gerðinni 747-8F.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.