flugfréttir
Spænskir flugmenn íhuga verkföll í sumar
- Gæti haft áhrif á nokkur evrópsk flugfélög sem fljúga um Spán

Air Europa hefur nú þegar boðað til verkfallsaðgerða síðar í þessum mánuði
Svo gæti farið að einhver röskun verði á áætlunaflugi til og frá Spáni í sumar þar sem nokkur flugfélög íhuga verkfallsaðgerðir á meðan mesta ferðatímabilið stendur yfir.
Spænska flugmannafélagið Sepla hefur lýst yfir óánægju vegna „óviðunandi ástands“ og sinnuleysis
hjá spænskum stjórnvöldum og þá sérstaklega hjá samgönguráðuneyti Spánar varðandi
starfsumhverfi og stefnu í flugmálum.
Meðal flugfélaga sem gætu komið að verkfallsaðgerðunum eru Jet2, Norwegian, easyJet, Ryanair
Iberia, Vueling, Eurowings, Plus Ultra og Swift Air.
Javier Fernández-Picazo, forsvarsmaður félag spænskra atvinnuflugmanna, segir að spænskir
flugmenn séu orðnir langþreyttir á ástandinu og því óréttlæti sem stjórnvöld beita og tekur
hann fram að verkfallsaðgerðir sé meðal þess sem verið er að ræða.
Þá nefnir hann að flugfreyjur, flugþjónar og flugumferðarstjórar gætu einnig slegist í hóp
flugmanna og lagt niður störf sín á næstunni ef til verkfalls kemur.
Samkvæmt fréttum kemur fram að félag spænskra atvinnuflugmanna sé búið að lýsa því yfir
að flugfélagið Air Europa sé að hefja verkfallsaðgerðir á Spáni sem dreifist yfir átta daga á tímabilinu
frá 22. maí fram til 2. júní.


6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.