flugfréttir

Spænskir flugmenn íhuga verkföll í sumar

- Gæti haft áhrif á nokkur evrópsk flugfélög sem fljúga um Spán

15. maí 2023

|

Frétt skrifuð kl. 11:44

Air Europa hefur nú þegar boðað til verkfallsaðgerða síðar í þessum mánuði

Svo gæti farið að einhver röskun verði á áætlunaflugi til og frá Spáni í sumar þar sem nokkur flugfélög íhuga verkfallsaðgerðir á meðan mesta ferðatímabilið stendur yfir.

Spænska flugmannafélagið Sepla hefur lýst yfir óánægju vegna „óviðunandi ástands“ og sinnuleysis hjá spænskum stjórnvöldum og þá sérstaklega hjá samgönguráðuneyti Spánar varðandi starfsumhverfi og stefnu í flugmálum.

Meðal flugfélaga sem gætu komið að verkfallsaðgerðunum eru Jet2, Norwegian, easyJet, Ryanair Iberia, Vueling, Eurowings, Plus Ultra og Swift Air.

Javier Fernández-Picazo, forsvarsmaður félag spænskra atvinnuflugmanna, segir að spænskir flugmenn séu orðnir langþreyttir á ástandinu og því óréttlæti sem stjórnvöld beita og tekur hann fram að verkfallsaðgerðir sé meðal þess sem verið er að ræða.

Þá nefnir hann að flugfreyjur, flugþjónar og flugumferðarstjórar gætu einnig slegist í hóp flugmanna og lagt niður störf sín á næstunni ef til verkfalls kemur.

Samkvæmt fréttum kemur fram að félag spænskra atvinnuflugmanna sé búið að lýsa því yfir að flugfélagið Air Europa sé að hefja verkfallsaðgerðir á Spáni sem dreifist yfir átta daga á tímabilinu frá 22. maí fram til 2. júní.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga