flugfréttir

Taka fljótlega ákvörðun um nýtt flugfélag í stað Adria Airways

17. maí 2023

|

Frétt skrifuð kl. 11:17

Adria Airways varð gjaldþrota í september árið 2019

Ríkisstjórn Slóveníu segir að ákveðið verði í næsta mánuði hvort að til standi að stofna nýtt flugfélag í stað Adria Airways sem varð gjaldþrota árið 2019.

Ef af því verður er stefnan að koma á fót nýju flugfélagi sem myndi hefja rekstur fyrir lok ársins 2024 en innviðaráðuneyti landsins er þessa daganna að framkvæma ítarlegt mat á því hvort að nýtt flugfélag fyrir Slóveníu sé fýsilegur kostur.

Fram kemur að ferðamannaiðnaðurinn í Slóveníu sé nú þegar búinn að fara á mis við 150 milljónir evra frá því að Adria Airways varð gjaldþrota og þá hafi flugsamgöngur versnað til og frá Ljubljana þar sem færri tengingar eru í boði en var við aðrar borgir í Evrópu.

Tveir sérfræðingar í ferðamálum er varðar Slóveníu, annarsvegar fyrrum framkvæmdarstjóri Adria og fyrrum framkvæmdarstjóri Fraport Slovenia, hafa varað ríkisstjórn landsins við því að það sé engin trygging fyrir því að íbúar landsins séu reiðubúnir að borga hærri flugfargjöld til þess að fljúga aftur með ríkisflugfélagi.

Nýlega fór fram útboð þar sem óskað var eftir flugfélögum til þess að hefja áætlunarflug til Slóveníu og aðeins tvö flugfélög tóku þátt í því sem var Luxair og Air Montenegro.

Í dag eru 17 flugfélög sem fljúga til Ljubljana en það flugfélag sem býður upp á flestar tengingar er Lufthansa, sem flýgur þangað frá Frankfurt og Munchen. Önnur flugfélög sem fljúga til Ljubljana eru til að mynda British Airways, easyJet, Brussels Airlines, Finnair, flydubai, LOT Polish Airlines, SWISS International Air Lines og Wizz Air.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga