flugfréttir

Skoða að fljúga um annan flugvöll í stað Köben í sumar

- Óttast að mannekla meðal flugumferðarstjóra eigi eftir að hafa áhrif á sumarið

19. maí 2023

|

Frétt skrifuð kl. 13:11

Boeing 737-800 þota Norwegian

Norwegian íhugar að flytja áætlunarflug sitt um flugvöllinn í Kaupmannahöfn á annan flugvöll tímabundið vegna seinkana á flugvellinum í dönsku höfuðborginni sem er tilkomnar vegna deilna flugumferðarstjóra.

Vinnustöðvanir og mannekla hefur átt sér stað að undanförnu meðal flugumferðarstjóra og hefur verkalýðsfélag þeirra átt í töluverðum deilum við flugleiðsögufyrirtækið Naviair og hefur það haft áhrif á hundruðir þúsunda farþega á síðustu vikum.

Norwegian hefur haft miklar áhyggjur af þessu ástandi og borið það undir við dönsku ríkisstjórnina og einnig rætt það við aðalsamkeppnisaðilann sem er flugfélagið SAS.

„Við verðum að fara að skoða aðra flugvelli sem eru í boði sem eru nálægt Kaupmannahöfn“, segir Geir Karlsen, framkvæmdarstjóri Norwegian, og tekur hann fram að óvíst hvort hægt sé að flytja áætlunarflug annað með svo stuttum fyrirvara.

Um 17 prósent af öllu áætlunarflugi sem fer um flugvöllinn í Kaupmannahöfn er á vegum Norwegian og er félagið það umsvifamesta á flugvellinum á eftir SAS sem fer fyrir þriðjungi af öllu áætlunarflugi.

Um 46 flugumferðarstjórum, sem störfuðu hjá Naviair, var boðið að segja upp starfi sínu í heimsfaraldrinum en erfiðlega hefur gengið að fá þann fjölda aftur til baka og hefur fyrirtækið neyðst til þess að láta einhverja flugumferðarstjóra taka að sér aukavaktir.

Flugumferðarstjórar hafa mótmælt yfirvinnuvöktunum og lýst því yfir að yfirvinnan sé mjög neikvæð sökum álags og hafa samtök atvinnulífsins í Danmörku hvatt samgönguráðherra landsins til þess að grípa til aðgerða til þess að koma í veg fyrir yfirvofandi martröð sem blasir við í sumar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga