flugfréttir
Delta í viðræðum við Airbus um pöntun á fleiri breiðþotum

Airbus A330-900neo þota frá Delta Air Lines
Bandaríska flugfélagið Delta Air Lines á í viðræðum þessa daganna við Airbus um fyrirhugaða pöntun á fleiri breiðþotum.
Ekki er gefið upp hvaða tegund Delta Air Lines hyggst panta en samkvæmt heimildum er flugfélagið að spá
í fleiri breiðþotur af gerðinni Airbus A330neo og fleiri Airbus A350 þotur og er þeim ætlað að leysa af hólmi eldri þotur í flotanum
af gerðinni Airbus A330 og Boeing 767.
Mögulegt er að yfirlýsing varðandi pöntunina verði gerð á flugsýningunni Paris Air Show en Delta hefur nú
þegar Airbus A330-900N í flota sínum og Airbus A350-900.
Delta hefur fengið 22 Airbus A330-900N þotur afhentar og á félagið eftir að fá sextán afhentar til viðbótar
en meðalaldur vélanna er 1.9 ár.
Meðal breiðþotna sem eru komnar til ára sinna í flota flugfélagsins eru Airbus A330-200
sem hafa meðalaldur upp á 18 ár og þrjátíu og ein Airbus A330-300 þota með meðalaldur upp á 14.4 ár.
Þá hefur Delta 45 Boeing 767-300ER breiðþotur en meðalaldur þeirra er 27.2 ár og tuttugu og eina
Boeing 767-400ER þotur með meðalaldur upp á 22.4 ár.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.