flugfréttir
Farþegafjöldinn um Heathrow sá sami og var fyrir COVID
- Lendingargjöld ennþá í hæstu hæðum

Frá Heathrow-flugvellinum í London
Flugumferðin um Heathrow-flugvöllinn í London er að nálgast að verða sú sama og hún var fyrir heimsfaraldurinn þrátt fyrir miklar hækkanir sem hafa orðið á lendingargjöldum.
Í apríl fóru 6.4 milljónir farþega um Heathrow-flugvöllinn og alls voru 16.9 farþegar sem fóru um flugvöllinn á fyrsta
ársfjórðungi þessa árs sem er um 95% af þeim farþegafjölda sem fór um völlinn á fyrstu þremur mánuðum ársins 2019.
„Það eru aðeins 12 mánuðir síðan að öllum ferðatakmörkunum var aflétt í Bretlandi og við höfum séð gríðarlegan
árangur síðan þá“, segir John Holland-Kaye, framkvæmdarstjóri flugvallarins.
Þrátt fyrir þennan árangur þá nemur taprekstur Heathrow-flugvallarins á fyrsta ársfjórðungi um 139 milljón pundum
eða sem samsvarar 24 milljörðum króna sem jafngildir tapi upp á 269 milljónum króna á dag.
Stjórn Heathrow-flugvallarins hefur verið sökuð um alltof há lendingargjöld sem eru í dag um 5.400 krónur á hvern farþega
en gert er ráð fyrir að þau eigi eftir að hækka upp í tæplega 7.000 krónur á næstu árum.
Þrátt fyrir það þá höfðu bresk flugmálayfirvöld lýst því yfir að frá og með næsta ári gæti stjórn flugvallarins ekki rukkað
hærri flugvallargjöld en sem nemur 4.300 krónum á hvern farþega en Heathrow-flugvöllur hefur andmælt þeirri ályktun
á þeim forsendum að aukið fé þarf til framkvæmda til að bæta þjónustu vallarins fyrir farþega.
British Airways hefur lýst því yfir að lendingargjöld og farþegaskattar séu þrisvar sinnum hærri en tíðkast á flestum öðrum
stórum flugvöllum í Evrópu og þá hefur Virgin Atlantic lýst því yfir að félagið telji að hagnaðurinn af hækkun gjalda eigi
eftir að enda í vösum fjárfesta en ekki til innviða.
Virgin Atlantic hefur meðal annars mótmælt þessum hækkunum með því að draga til baka stuðningsyfirlýsingu sína vegna
þriðju flugbrautarinnar á Heathrow-flugvelli.


6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.