flugfréttir

Enn og aftur setur Nepal Airlines Boeing 757 þotu á uppboð

24. maí 2023

|

Frétt skrifuð kl. 12:18

Nepal Airlines tók 9N-ACB úr umferð árið 2018

Enn og aftur gerir nepalska flugfélagið Nepal Airlines tilraun til þess að selja Boeing 757 þotu sem félagið hafði í flotanum en hætti að nota í reglubundnu áætlunarflugi fyrir 5 árum síðan.

Flugvélin, sem er næstum því 35 ára gömul, hefur verið sett á uppboð ásamt varahlutum og öðrum búnaði en lágmarksverð uppboðsins eru 5.7 milljónir Bandaríkjadala sem samsvarar 803 milljónum króna.

Fram kemur að flugvélin, sem ber skráninguna 9N-ACB, hefur 89.492 flugtíma að baki og hefur verið flogið 30.535 flugferðir frá því hún var smíðuð árið 1988. Þá kemur fram að flughæfnisvottorð vélarinnar er útrunnið auk þess sem hún þarfnast C-skoðunnar.

Alls eru 515 varahlutir sem fylgja vélinni auk 109 ýmissa tækja og verkfæra. Öllum einstaklingum, stofnunum og fyrirtækjum er frjálst að leggja inn tilboð en það krefst þess að viðkomandi greiði 10% inn á uppboðsupphæðina.

Flugvélin er af gerðinni Boeing 757-200CB og hefur sæti fyrir 190 farþega og þar af 12 á Business Class farrými.

Seinasta tilraun Nepal Airlines að selja gamla Boeing 757 þotu var gerð árið 2019 en seinast þegar félaginu tókst að selja slíka þotu var árið 2017 þegar nýtt flugfélag í Nepal, BB Airways, keypti eina slíka af félaginu á 153 milljónir króna







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga