flugfréttir
Yfir 1.500 ferðir farnar með flugvélum sem skorti viðhald

Antonov An-2 flugvél frá Polar Airlines
Rússneska flugfélagið Polar Airlines, sem annast flugsamgöngur til og frá Yakutia í Síberíu, flaug yfir 1.500 flugferðir með nokkrum flugvélategundum sem allar skorti viðhald auk þess sem varahlutir voru runnir á tíma.
Þetta kemur fram á Telegram-síðu Aviatorschina sem reglulega birtir upplýsingar sem hefur verið
lekið frá rússneska flugiðnaðinum en upplýsingarnar koma frá samgönguráðuneyti Rússlands.
Fram kemur að Polar Airlines hafi flogið 1.500 flugferðir með flugvélum af gerðinni
Antonov An-26, An-24 og Let-410 sem höfðu
ýmist ekki farið í gegnum tilskylda viðhaldsskoðun eða voru með íhluti
sem hefði átt að vera búið að skipta um.
Meðal varahluta sem voru komnir á tíma og var ekki skipt um samkvæmt
viðhaldsáætlun voru eldsneytisdælur, skynjarar, súrefniskerfi, ventlar,
kompássar, soggreinar, þrýstingsskynjarar auk annarra íhluta.
Til að mynda segir að einni Let L-410 flugvél í flota félagsins hafi
verið með eldsneytisdælu sem var komin 20 mánuði fram yfir skoðun
og þá hefi komið í ljós að 97 starfsmenn félagsins, þar á meðal
flugmenn og flugvirkjar, hafi starfað hjá félaginu án tilskilinnar
þjálfunnar.
Polar Airlines segir í yfirlýsingu sem gefin var út í dag að fulltrúar frá
rússneskum flugmálayfirvöldum hafi framkvæmt skyndiúttekt á starfsemi
flugfélagsins í apríl síðastliðnum og segir félagið að það hafi brugðist við
og gripið til viðeigandi aðgerða til þess að koma í veg fyrir að annmarkar
af þessu tagi endurtaki sig.


6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.