flugfréttir

Yfir 1.500 ferðir farnar með flugvélum sem skorti viðhald

24. maí 2023

|

Frétt skrifuð kl. 12:45

Antonov An-2 flugvél frá Polar Airlines

Rússneska flugfélagið Polar Airlines, sem annast flugsamgöngur til og frá Yakutia í Síberíu, flaug yfir 1.500 flugferðir með nokkrum flugvélategundum sem allar skorti viðhald auk þess sem varahlutir voru runnir á tíma.

Þetta kemur fram á Telegram-síðu Aviatorschina sem reglulega birtir upplýsingar sem hefur verið lekið frá rússneska flugiðnaðinum en upplýsingarnar koma frá samgönguráðuneyti Rússlands.

Fram kemur að Polar Airlines hafi flogið 1.500 flugferðir með flugvélum af gerðinni Antonov An-26, An-24 og Let-410 sem höfðu ýmist ekki farið í gegnum tilskylda viðhaldsskoðun eða voru með íhluti sem hefði átt að vera búið að skipta um.

Meðal varahluta sem voru komnir á tíma og var ekki skipt um samkvæmt viðhaldsáætlun voru eldsneytisdælur, skynjarar, súrefniskerfi, ventlar, kompássar, soggreinar, þrýstingsskynjarar auk annarra íhluta.

Til að mynda segir að einni Let L-410 flugvél í flota félagsins hafi verið með eldsneytisdælu sem var komin 20 mánuði fram yfir skoðun og þá hefi komið í ljós að 97 starfsmenn félagsins, þar á meðal flugmenn og flugvirkjar, hafi starfað hjá félaginu án tilskilinnar þjálfunnar.

Polar Airlines segir í yfirlýsingu sem gefin var út í dag að fulltrúar frá rússneskum flugmálayfirvöldum hafi framkvæmt skyndiúttekt á starfsemi flugfélagsins í apríl síðastliðnum og segir félagið að það hafi brugðist við og gripið til viðeigandi aðgerða til þess að koma í veg fyrir að annmarkar af þessu tagi endurtaki sig.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga