flugfréttir
Áform Embraer um nýja skrúfuþota sett á hilluna
- Ætla að hinkra eftir frekari þróun hjá hreyflaframleiðendum

Embraer hafði áform um að ný skrúfuþota kæmi á markað árið 2028
Áform brasilíska flugvélaframleiðandans Embraer, um að koma með nýja skrúfuþotu á markað á þessum áratug, ná eflaust ekki fram að ganga samkvæmt áætlun.
Arjan Meijer, framkvæmdarstjóri yfir farþegaþotudeild Embraer, segir að ekki hafi náðst
að semja við hreyflaframleiðendur í tæka tíð með að gera ráð fyrir hönnun og þróun
á nýrri tegund hreyfils svo hægt væri að koma með slíka flugvél á markað innan sjö ára.
„Við erum frekar vonsvikin“, segir Meijer varðandi ákvörðun Embraer um að setja
verkefnið á hilluna um óákveðin tíma og nefnir hann að nú þegar séu nokkur flugfélög
sem hafa orðið fyrir vonbrigðum þar sem þau höfðu áhuga á flugvélinni.
„Ný flugvél í þessum stærðarflokki með mun hljóðlátara farþegarými sem skiptist upp
í tvö rými og með betri eiginleika en sambærilegar flugvélar er eitthvað sem markaðurinn
er að leita að“, segir Meijer.
„Við vorum þó mjög skýrmælt varðandi að við myndum aðeins hefja framleiðslu á slíkri
flugvél með þær forsendur í huga að mögulegt væri að ná fram hagkvæmni, sparneytni,
áreiðanleika og eldsneytiseyðslu öllu í sama boxið“, bætir Meijer við og tekur hann
fram að miðað við það sem stendur til boða hjá hreyflaframleiðendum þá sé ekki unnt
að ná því markmiði eins og staðan er í dag.
Embraer hefur velt fyrir sér þeim möguleika undanfarin ár að koma með eina hagkvæmustu
skrúfuþotu á markað í flokki þeirra sem koma með sæti fyrir 70 til 90 farþega en
slík fjárfesting myndi kosta í kringum 195 milljarða króna.
Meijer segir að skynsamlegra sé að gefa þessu verkefni lengri tíma og hinkra aðeins
eftir að tækni og þróun hjá hreyflaframleiðendum nær enn lengra og segir hann að þeir
eigi í viðræðum við alla helstu framleiðendurna.
Upphaflega til stóð að ný skrúfuþota frá Embrear kæmi á markað árið 2028 en nú er talið að það muni frestast fram á fjórða áratug þessarar aldar.


6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.