flugfréttir

SAS opnar fyrir bókanir með fyrstu rafmagnsflugvélinni

- Flugið verður þó ekki farið fyrr en árið 2028

1. júní 2023

|

Frétt skrifuð kl. 07:27

Tölvugerð mynd af rafmagnsflugvélinni ES-30 í litum SAS

SAS (Scandinavian Airlines) hefur opnað fyrir bókanir fyrir fyrstu flugferðir félagsins með rafmagnsflugvél þrátt fyrir að áformað sé að fyrsta rafmagnsflugið verði ekki flogið fyrr en árið 2028.

SAS hefur tilkynnt að flugfélagið muni opna á morgun, 2. júní, fyrir bókanir með fyrstu flugvélinni sem mun fljúga eingöngu fyrir raforku.

Þar sem að tiltölulega langur tími er þangað til að flugið verður farið, eða heil 5 ár, þá eru litlar upplýsingar að fá um flugið enn sem komið er og er til að mynda ekki búið að gefa út hver áfangastaðurinn verður.

Eina sem vitað er fyrir vissu er að um er að ræða innanlandsflug í einhverjum af þeim þremur löndum sem SAS hefur bækistöðvar sem er Noregur, Danmörk og Svíþjóð.

SAS hefur gefið út að sá sem bókar flugið getur fært farmiðann yfir á annað nafn ef viðkomandi farþegi kemst ekki í flugið eftir 5 ár en farmiðinn mun kosta frá 1.946 norskum, dönskum eða sænskum krónum sem táknar það ár sem SAS hóf starfsemi sína en það jafngildir frá 24.000 krónum upp í 39.000 krónur eftir því hvaða gjaldmiðill er notaður.

Þá er ekki heldur búið að gefa út hver flugvélategundin er sem flogið verður með en mestar líkur eru á því að um verði að ræða rafmagnsflugvélina ES-30 frá Heart Aerospace sem er nú í þróun og er gert ráð fyrir að hún komi á markað árið 2028.

Í september í fyrra lýsti Heart Aerospace því yfir að verið væri að undirbúa þróun á því að breyta farþegaflugvél yfir í rafmagsnflugvél og hafa SAS, United Airlines og Finnair lýst yfir áhuga á slíkri flugvél og ætlar SAS að panta óákveðin fjölda af flugvélinni þegar nær dregur.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga