flugfréttir
Nýtt breskt flugfélag festir kaup á Airbus A380 risaþotu
- Global Airlines stefnir á fyrsta áætlunaflugið vorið 2024

Fyrsta Airbus A380 risaþota Global Airlines
Nýtt breskt sprotaflugfélag, Global Airlines, hefur fest kaup á sinni fyrstu þotu sem er risaþota af gerðinni Airbus A380 sem mun hefja áætlunarflug frá Gatwick-flugvellinum í London næsta vor.
Global Airlines kaupir þotuna frá Doric Asset Finance í Þýskalandi og segir í tilkynningu að ákveðið hafi
verið að kaupa þotuna frekar en að taka hana á leigu sem endurspeglar sterka fjárhagsstöðu
félagsins.
„Kaupin á fyrstu flugvélinni okkar sýnir hversu vel við erum komnir á leið með að setja
Global Airlines í loftið. Næstu skref eru að endurinnrétta risaþotuna eftir okkar forskrift
og er markmiðið að bjóða farþegum upp á bestu upplifun sem völ er á í flugheiminum
í dag“, segir James Asquith, stofnandi og framkvæmdarstjóri Global Airlines.
Sibylle Paehler hjá Doric Asset Finance segir að þeir hafi mikla trú á Global Airlines
og segist hann sannfærður um að nýja flugfélagið eigi eftir að kaupa fleiri A380 risaþotur af þeim
en flugvélaleigan þýska á 17 risaþotur til viðbótar sem allar eru í flota Emirates í dag.
Risaþotan sem Global Airlines hefur fest kaup á ber skráninguna 9H-MIP og var hún afhent
ný til Singapore Airlines árið 2008 en því næst var hún leigð til Hi Fly Malta árið 2018.
Eftir að Hi Fly Malta gekk erfiðlega að finna nýjan leigjenda fyrir þotuna árið 2020 var hún
ferjuð til Lourdes/Tarbes flugvöllinn þar sem hún hefur verið í geymslu á meðan
á heimsfaraldrinum stóð en nú hefur hún verið málið í litum Global Airlines.
Global Airlines stefnir á að kaupa þrjár Airbus A380 risaþotur til viðbótar og verða þær
allar útfærðar með sæti fyrir 471 farþega.
Global Airlines mun svipta hulunni af leiðarkerfi félagsins síðar á þessu ári. Upphaflega
stóð til að fljúga áætlunarflug frá Gatwick-flugvelli til fjarlægra áfangastaða víða um heim
en í dag hefur félagið frekar ákveðið að einblína á áætlunarflug vestur um haf til Ameríku.


6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.