flugfréttir

Nýtt breskt flugfélag festir kaup á Airbus A380 risaþotu

- Global Airlines stefnir á fyrsta áætlunaflugið vorið 2024

1. júní 2023

|

Frétt skrifuð kl. 08:47

Fyrsta Airbus A380 risaþota Global Airlines

Nýtt breskt sprotaflugfélag, Global Airlines, hefur fest kaup á sinni fyrstu þotu sem er risaþota af gerðinni Airbus A380 sem mun hefja áætlunarflug frá Gatwick-flugvellinum í London næsta vor.

Global Airlines kaupir þotuna frá Doric Asset Finance í Þýskalandi og segir í tilkynningu að ákveðið hafi verið að kaupa þotuna frekar en að taka hana á leigu sem endurspeglar sterka fjárhagsstöðu félagsins.

„Kaupin á fyrstu flugvélinni okkar sýnir hversu vel við erum komnir á leið með að setja Global Airlines í loftið. Næstu skref eru að endurinnrétta risaþotuna eftir okkar forskrift og er markmiðið að bjóða farþegum upp á bestu upplifun sem völ er á í flugheiminum í dag“, segir James Asquith, stofnandi og framkvæmdarstjóri Global Airlines.

Sibylle Paehler hjá Doric Asset Finance segir að þeir hafi mikla trú á Global Airlines og segist hann sannfærður um að nýja flugfélagið eigi eftir að kaupa fleiri A380 risaþotur af þeim en flugvélaleigan þýska á 17 risaþotur til viðbótar sem allar eru í flota Emirates í dag.

Risaþotan sem Global Airlines hefur fest kaup á ber skráninguna 9H-MIP og var hún afhent ný til Singapore Airlines árið 2008 en því næst var hún leigð til Hi Fly Malta árið 2018.

Eftir að Hi Fly Malta gekk erfiðlega að finna nýjan leigjenda fyrir þotuna árið 2020 var hún ferjuð til Lourdes/Tarbes flugvöllinn þar sem hún hefur verið í geymslu á meðan á heimsfaraldrinum stóð en nú hefur hún verið málið í litum Global Airlines.

Global Airlines stefnir á að kaupa þrjár Airbus A380 risaþotur til viðbótar og verða þær allar útfærðar með sæti fyrir 471 farþega.

Global Airlines mun svipta hulunni af leiðarkerfi félagsins síðar á þessu ári. Upphaflega stóð til að fljúga áætlunarflug frá Gatwick-flugvelli til fjarlægra áfangastaða víða um heim en í dag hefur félagið frekar ákveðið að einblína á áætlunarflug vestur um haf til Ameríku.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga