flugfréttir

Hætti við flugtak og rak í veg fyrir þotu í flugtaki vegna hliðarvinds

5. júní 2023

|

Frétt skrifuð kl. 09:07

Atvikið átti sér stað á Charles de Gaulle flugvellinum í París þann 21. október árið 2020

Rannsóknarnefnd flugslysa í Frakklandi hefur gefið frá sér skýrslu varðandi alvarlegt flugatvik sem átti sér stað á Charles de Gaulle flugvellinum í París fyrir tveimur og hálfu ári síðan.

Atvikið varðar farþegaþotu frá flugfélaginu Hop af gerðinni Embraer E170 sem þurfti að hætta við lendingu og var í fráhvarfsflugi en rak til hliðar vegna hvassviðris og fór inn á flugtaksferil hjá Airbus A320 þotu sem var í flugtaki á flugbraut sem liggur samhliða hinni brautinni.

Fram kemur að atvikið hafi átt sér stað þann 21. október árið 2020 og var þotan frá Hop að koma inn til lendingar á braut 26L í miklum hliðarvindi og þurfti að hætta við lendingu í 200 feta hæð yfir braut eftir að upp kom viðvörun um sviptivinda.

Flugmennirnir fór í fráhvarfsflug („go around“) og klifruðu upp í 1.500 fet og létu flugumferðarstjóra vita að þeir þyrftu að fara í go-around. Fljótlega fór flugvélina að reka til hægri vegna hliðarvindsins og fór hún í átt að brottfararferlinum á brautinni hliðina á, braut 26R, en þar var þota frá Brussels Airlines af gerðinni Airbus A320 að hefja sig á loft á sama tíma.

Flugumferðarstjóri gaf tilmæli til Embraer-þotunnar um að beygja strax til vinstri á stefnu 240 gráður og lásu flugmennirnir þá skipun til baka en fylgdu henni ekki eftir.

Fram kemur að flugmennirnir hefði breytt stefnunni í 250 gráður en haldið svo beinni stefnu og var þotan því enn að reka í áttina að Airbus A320 þotunni.

Flugmennirnir á Airbus A320 þotunni tilkynntu að þeir væru að framfylgja árekstrarvarnarverkeferli og flugmenn Embraer-þotunnar sögðu að þeir væru einnig að fylgja sama verkferli í aðstæðum sem þessum.

Rannsóknarnefndin segir að samkvæmt þeirra greiningu hafi um 550 fet skilið þoturnar lárétt og um 460 fet lóðrétt þegar minnstu munaði.

62 farþegar voru um borð í Embraer-þotunni frá Hop og 41 um borð í Airbus A320 þotunni frá Brussels Airlines og sakaði engann.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga